Vorið - 01.09.1956, Blaðsíða 9

Vorið - 01.09.1956, Blaðsíða 9
V C) R I Ð 87 mikilvæg. Börnum þykir gaman að þessu frjálsa félagsstarli og það stuðlar að þroska þeirra. Þarna læra þau að inna af liöndum ýms- ar skyldur, fyrir stúkuna sína. Það glæðir ímyndunarafl þeirra að iinna skemmtiatriði iyrir fundina og hvernig þau verði be/.t útfærð. Margir af lei'kurum okkar hafa byrj- að að iðka þá list í barnastúkunum. Margir embættismenn hafa flutt lyrslu ræðuna þar. ()g sumir söngv- arar og hljóðfæraleikarar hafa fyrst verið hljóðfæraleikarar í stúkunni sinni. Ein af söngkonum okkar, Hanna Bjarnadóttir, var t. d. mörg ár hljóðfæraleikari í barnastúkunni Sakleysið. Af þeim 60 barnastúkum, sem starfandi eru í landinu, er starfið mjög misjafnt. Fer það mest eftir því, hve mikinn tíma gæzlumenn- irnir hafa til að starfa með börnun- um. Börnin eru venjulega viljug til starfa. En þetta starf byggist á því að einhverjir fórnfúsir menn á hverjum stað gefi sér tíma til að sinna þessum félagsstörfum með börnunum. Þetta er ólaunað starf. F.n það felur í sér launin að vinna lyrir æskuna í landinu, leiðbeina henni inn á hollar brautir og eiga með henni glaðar og ánægjulegar stundir. Unglingareglan er að byrja átt- unda tuginn. Ég óska Irenni heilla og blessunar í starfi. Gamciri og alvara Stúdent nokkur, sent var á ferðalagi, lenti í sama vagni og prófessor einn. Og til þess að stytta sér stundir við eitthvað, stakk prófessorinn upp á því, að þeir létu hvor annan ráða gátur. „I hvert sinn, sem þér getið rangt, greið- ið þér mér eina krónu. En geti ég rangt, greiði ég yður eina krónu,“ sagði prófess- orinn. ,,En, prófessor," sagði stúdentinn, „þér eruð svo niiklu lærðari og vitrari en ég. Mér fyndist því rétt, að ég greiddi aðeins 50 aura.“ „Já, það er sanngjarnt," sagði prófess- orinn. „Við höfuð J>að Jiá Jjannig. Og nú byrjið J)ér.“ „Hvaða fugl er Jtað, sem fxðir lifandi unga?“ spurði stúdentinn. „Það veit ég ekki,“ svaraði prófessorinn. „Hana, þarna hafið J)ér krónuna. En hvað lieitir })á fuglinn?" „Það veit ég ekki heldur,“ sagði stúd- entinn. „Hérna hafið þér 50 aura.“ —o— Maður frá borginni: „Ræktunaraðferðir yðar eru mjög gamaldags. Það myndi koma ntér ntjiig á óvart, ef þér fengjuð nteira cn svo sem 10 kg af eplurn af Jiessu tré.“ Bóndinn: „Mér mundi einnig koma það á óvart, því að Jjetta er nefnilega peru- tré.“ —o— '1 veir drengir voru að sækja mjólk fyrir mömmu sína. Er þeir voru komnir hálfa leið heim, datt sá drengurinn, sem bar mjólkurskjóluna, svo að mjólkin öll ranu á götuna. Þá segir hinn: „Hvers vegna gaztu ekki sett frá [>ér skjóluna áður en þú datzt?“ E. Sig.

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.