Vorið - 01.09.1956, Síða 11

Vorið - 01.09.1956, Síða 11
V O R I Ð 89 hans, þegar hann gengur á ská yfir götuna og opnar stóru hurðina, og það skín trú og von úr svip lians, þegar hann sér stóru, björtu augu afgreiðslunrannsins innan við af- greiðsluborðið. En nraðurinn hvorki sér eða heyr- ir, svo að hann verður að segja er- indi sitt þrisvar. Og í síðasta skiptið dró hann ekki af röddinni. — Þú vilt fá lán, segir maðurinn, alveg undrandi. En hann hikar og lítur framan í þetta drengilega and- lit, sem er umkringt rauðbrúnu hári, er stendur í allar áttir. Svo kímdi hann dálítið. — Það verður þú að tala um við sjálfan banka- stjórann, segir hann og setur upp alvörusvip. Stundarkorni síðar er Kári sokk- inn niður í djúpan stól á fínni skrifstofu, og lioi'fir á sköllóttan mann. Hann segir frá foreldrum sínum og þremur litlu systrunum, sem ekki gera annað en slíta fötum og sulla mat á borðið. Bankastjór- inn spyr um margt og meðal annars, til livers Kári ætli að nota pening- ana.Þegar hann segir,að hann muni geta reytt helmingi meira af illgresi, ef hann fái reiðhjólið, er eins og bankastjórinn iiækki í sætinu. — Þetta líkar mér að lieyra, segir hann. Eg ætla að hætta á að lána þér þetta, því að illgresi er það versta, sem ég þekki. Rífðu það upp með rótum, bætir hann við og nuddar saman höndunum eins og hann sé að reyta sjálfur. Hann er svo ákafur, að Kári brosir með sjálfum sér að þessum góða rnanni um leið og hann klórar nafnið sitt á þriggja mánaða víxil. Það er stutt leið í sportvöruverzl- unina. Búðarstrákurinn verður alveg undrandi, jregar hann sér alla peningana, og er lipur og hjálpsam- ur við að ná reiðhjólinu út, en Kári hugsar aðeins um að hjóla lieim sem fyrst. En þá kemur honum allt í einu eitthvað í hug, snýr sér við í dyrunum og segir: — En ég iief samt ekki étið grá- stein. Búðarstrákurinn kinkar kolli á móti, jrví að andlitið á Kára ljóm- aði allt af brosi. Það voru ekki margir drengir, sem unnu eins mikið og Kári í leyf- inu þá um sumarið. Stundvíslega klukkan hálf sjö á morgnana var hann tilbúinn til að bera út blöðin, og nokkrum stundum síðar hreins- aði hann illgresi í garðyrkjustöðinni hjá Þóri Haug, og það leið varla nokkurt kvöld svo, að hann væri ekki í sendiferðum fyrir foreldra sína eða einhverja aðra. Stundum hjólaði hann með litlu systur sínar á bögolaberanum. En hann gleymdi ekki blaðinu í bankanum, senr beið hans. Það stóðu á því þrír mánuðir, en dag- arnir liðu svo fljótt, að lrann Jrorði ekki að bíða lengur en sex vi'kur. Þá var sumarleyfið á enda, og hann

x

Vorið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.