Vorið - 01.09.1956, Blaðsíða 37

Vorið - 01.09.1956, Blaðsíða 37
V O R I Ð 115 Guiinar og Kolskeggur kve ájast SÖGUSÝNING Eft ir séra Arelíus Níelsson Útisvið. Fjöll í baksjn. — Bræðurnir Gunnar og Kolskeggur eru á sviðinu. Þeir eru búnir litklæðum. Fjallkonan kemur inn og gengur fram á sviðið. Hún les kvæðið Gunnarshólma út að orðunum: Nú er á brautu borinn vigur skær. Þegar Fjallkonan lýkur lestrinum, koma þeir inn og standa til hliðar á sviðinu. Annar horíir frain, en hiriri til íjalla. Kolsk.: Horfirþú þögull til Hlíð- arinnar, lrróðir? Gunnar: Víst er ég þögull, og þó brenna mér ótal orð á vörum. Kolsk.: Seg mér hug þinn, frændi, eins og svo oft áður. Það léttir dóm örlaganornanna. — Hví er þér svo þungt og tregt tungu að hræra? Gunnar: Ég hélt, að þú, Kol- skeggur, þyrftir ekki að spyrja. Þú lilýtur þó að finna, hve sárt við er- um leiknir. Lltlagar í þrjú löng ár, I jarri vinaraugum. Auk þess vei/.tu. að ég er ekki þeim mun óvaskari maður en aðrir menn, sem rnér þykir meira fyrir en öðrum að vega nrenn. Kolsk.: Veit ég vel, frændi, að þú ert vaskastur og mestur íþróttakappi þeirra, er nú eru uppi á íslandi. Og er mér einnig kunnugt um síttfýsi þína og þann friðarvilja, sem hinn nýi siður hefur kveikt. Ætti þér því fremur að vera ljúft að hlýða örlögj um þínum. Gunnar: Skajrlyndi mínu er erfitt að beygja sig. Kolsk.: Hetjunni er auðveldara að berjast en beygja sig gegn ofur- eflinu. Er það ekki auðmýktin, sem hinn nýi siður krefst af hinum sterku hetjum hefndanna? Gunnar: Svo mun vera, bróðir, og vissulega er lmgur þinn hæfari til hlýðni og auðmýktar en minn. — Mun og vandséð, hvorn okkar bræðra ókomnar aldir muni telja meiri hetju og sannari dreng. En aldrei hef ég komizt í slíka raun lyrr, og hef ég þó barizt einn á móti fjölda fjandmanna. Kolsk.: Þín fyrri utanför varð þér til mikillar sæmdar; svo mun og verða nú, eða hefur ekki Njáll á Bergþórshvoli spáð þér góðri ferð, og það með, að þú munir aftur (Framhald á bls. 118).

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.