Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 20

Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 20
klukkustund, en fólkið sneri sér í rúm- unum og hét því að endi skyldi verða bundinn á ævi þessarar skepnu, sem gat ekki unnt þeim að sofa sínum næt- ursvefni. Sá, sem átti bílinn, kom loks út í flaksandi morgunslopp og inniskóm og var argur og reiður, en um leið for- vitinn að vita, hvað væri að bílnum sínum. Snati fékk á eftir sér grjót og spýtubrot, þegar hann skauzt fyrir horn, en hversu vel sem maðurinn glápti og góndi, þá gat hann ekki séð neitt at- hugavert við bílinn, því að köttur frú Petterson lá grafkyrr undir blásturs- rörinu, og manninum datt ekki í hug að líta eftir þar. Hann fór hálfskj álf- andi inn úr morgupkulinu og hugsaði með sér að nú hefði hann þó rekið kvikindið burtu. En Snati hafði ekki hugsað sér að láta kisu sleppa svo auð- veldlega, og það voru ekki liðnar marg- ar mínútur áður en allt var í sama far- inu, kötturinn undir bílnum og Snati gjammaði af endurnýjuðum kröftum. Inni í húsunum dró hver um sig sæng- ina yfir höfuð sér og vonuðu að ólæt- in hættu, svo að þeir gætu fengið svefn- frið, en Snata hafði ekki dottið í hug að gefast upp og svo hélt hann áfram, þar til kominn var fótaferðatími. Margir voru miður sín og þreyttir við morgunverðarborðið þennan dag. En krakkarnir höfðu ekkert heyrt og var ekki um allar þær hótanir, sem beint var að Snata. „Þessi árans hundur,“ sögðu hinir fullorðnu. ,Það verður að gera eitthvað til þess að koma honum í burtu. Ef eig- andinn kálar honum ekki sjálfur, þá verðum við að gera það.“ Þannig gengu hótanirnar fram eftir deginum. Nokkrir hópuðust saman og héldu fund, þar sem samþykkt var að Teigur, sem átti byssu, skyldi finna eigandann og fara fram á að taka dýr- ið af lífi á stundinni. En það kom ekki til mála fyrr en um kvöldið. Fyrst varð Teigur að borða miðdegisverð og þar á eftir varð hann að fá sér ærlegan blund. Krakkarnir komust brátt á snoðir um, að Snati væri svo gott sem dauða- dæmdur. Dóttir Teigs, frískleg tólf ára táta, sem hét Kari, sagði þeim hvað fullorðna fólkið hefði orðið ásátt um- Hún kallaði saman krakkana, þegar hún kom út eftir miðdegisverðinn og öllum kom saman um, að þau þyrftu að gera eitthvað, ef Snati átti lífi að halda. ,Við felum hann einhvers staðar,“ stakk einn upp á. „Hvar þá?“ spurði Kari. „Ef til vill í kjallaranum.“ „Nei, það mundi ekki koma að not- um nema skamma stund, þeir fullorðnu voru alltaf með nefið niðri í öllu.“ En ef þau gætu fengið eigandann til að strjúka með hann? „Púff,“ hvein í Kari. „Hann kærir sig ekki einu sinni um að hafa hundinn sinn heima á nóttinni.“ Nei, þau urðu að gera gagnráðstafan- ir, ef þau ættu að ná rétti sínum, sagði hún. Börnin góndu á Kari og skildu ekki svona erfitt orð. En þegar Kari útskýrði fyrir þeim, að slíkt samsvar- aði því að safnast saman og fara í kröfugöngu, voru þau ekki lengi að sækja potthlemma og blokkflautur og annað slíkt, sem því tilheyrði. Ásamt 66 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.