Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 43

Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 43
11111 minn sé að skjóta þorska úti í skógi!“ Maðurinn skammaðist sín, játaði að atln hefði á röngu að standa og snaut- aði burt. En er keisarinn kom heim og varð þess vísari, að drottning hefði skorið úr að sér fornspurðum, varð hann f°kvondur og skipaði henni að verða kurt ýr jj-p gjnnj jjjg' hráðasta; hún ^efði rofið heit sitt og gæti því ekki verið sín kona lengur. »Þessu hafði ég búizt við,“ anzaði ^rottning, „og mun ég þegar á morgun verfa heim aftur til foreldra minna. ^11 þess vildi ég biðja yður, herra, að Pér leyfðuð mér að hafa það heim með lller> sem mér þykir vænst um.“ ^eisarinn leyfði henni það. Um völdið tók liún nokkrar svefnjurtir og landaði í drykk keisarans. Rann þá á ann þungur svefnhöfgi. Lét hún nú 1 l°na sína búa um hann í vagni, er var til taks í hallargarðinum, og ók svo með hann heim til foreldra sinna. Morguninn eftir er keisarinn vaknaði, varð liann næsta forviða; hann sá að hann var kominn í fátæklega baðstofu og stóð kona hans við rúmstokkinn. „Hver hefur flutt mig hingað?“ spurði hann byrstur. „Það hef ég gjört,“ svaraði hún. „Hvernig gaztu dirfzt þess? Eða hef- ur þér ekki skilizt að ég vil ekkert liafa með þig framar?“ „Jú, herra. En þér leyfðuð mér að hafa burt með mér það sem mér þætti vænzt um, og það hef ég gert. Þér vitið að ég ann yður fremur öllu öðru á jarð- ríki.“ Þegar keisarinn heyrði þessi orð konu sinnar, faðmaði hann hana innilega að sér. Oku þau síðan bæði saman aftur til hallarinnar. Og eftir það lifðu þau lengi í ástríku hjónabandi, þar til dauðinn gerði enda á sælu þeirra. Björn Bjarnarson frá Viðjirð'i þýddi. Fyrir skömmu var biskupinn yfir Islandi á yfirreið i sveit einni og kom meðal annars í litla kirkju, þor sem hann messaði, en á eftir talaði hann sérstaklega við börnin. Hann lagði fyrir þau margar spurningar og með- al annars þessa: Hvenær finnst ykk- ur þið hafa mesta þörf á að biðja til guðs? Margar hendur voru á fofti og ýmis svör bórust, t. d. „ó morgn- ano", „ó kvöldin", ,þegar mér liður illa" o. s. frv. Drengur einn i kirkj- unni hafði aldrei rétt upp hönd og tók ekki þótt í umræðunum. Biskup gcngur til hans og spyr: „Hvenær finnst þér að þú hafir mcsta þörf fyr- ir að biðja til guðs?" Drcngurinn svar- ar skjótlega: „Þegar mér dettur eitt- hvað Ijótt i hug." Hvað segið þið um þetta, kæru lcscndur „Vorsins"? VORIÐ 89

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.