Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 28

Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 28
legið á að láta sjóða í potti. Ég hef heldur aldrei séð pott hlaupa fyrr. KOBBI: Hann er eins og karl í kassa, inn og út allan tímann. (Hálf hlæj- andi) Ætli við fáum frið til að drekka kaffisopann. TOBBA: Réttu mér stóra fatið þarna undir þetta fallega brauð. — Þakka þér fyrir. Sérðu, hvað það er fallega bakað, glóandi brúnt. Alveg eins og ég bakaði það hérna á árunum, þegar við höfðum allt til þess. Manstu eftir því? KOBBI: Já, ég man eftir því. Ég man líka, þegar þú varst að baka kökuna hérna forðum og leitaðir sem mest að smjörinu í hana og sazt þá á því! (Þau hlæja bæði). TOBBA: Já, ég var víst ekki glæsileg aftan fyrir, þegar ég stóð upp. — Ja hérna, er enn barið? KOBBI: Ójá. Jæja, pottur sæll. POTTUR: Eldfljótt! Upp á borð! Eigið þið til nokkur orð! TOBBA: GuII! Nei, nú er ég orðlaus, pottur sæll. KOBBI: Ótal gullpeningar, fullur pottur. TOBBA: Hvolfdu þeim á borðið. BÆÐI: Ja, hérna! POTTUR: Áfram! Nú er nóg að gera. Nuddið bæði! — Ekk’ of fast! Ég loga allur! Æ, látið vera. Lát mig út! — Nú hleyp ég hart! TOBBA: Er þetta draumur eða vaka? KOBBI: Við erum glaðvakandi bæði tvö. Þetta gull er bara það, sem bónd- inn hefur látið okkur ofborga fyrir kotið öll þessi ár. Það safnast, þegar saman kemur. — Nú verðum við aldrei framar fátæk. Nú, hvað er að, Tobba mín? TOBBA: Mér er ekki um þetta. Manstu ekki eftir sögunni um sæta grautinn? KOBBI: Ónei, ekki man ég hana. Hvernig var hún? TOBBA: Það voru mæðgur, sem áttu pott, og hafði hann þá náttúru, að þegar sagt var við hann: „Láttu sjóða grautinn, potturinn væni“, kom í hann indæll grautur og kom í jafn- harðan og úr pottinum var tekið. Þangað til sagt var við hann: „hættu nú, potturinn væni“. KOBBI: Ekki var það amalegt. TOBBA: Nei, en einn góðan veðurdag var móðirin ein heima og sagði við pottinn: „Láttu nú sjóða grautinn, potturinn væni“ og borðaði sig sadda af graut, en þá mundi hún ekki, hvað átti að segja til að fá pottinn til að hætta grautargerðinni, svo að húsið, næstu hús, allar götur og allt þorpið fylltist af graut. Þegar dóttir hennar kom heim og sá þetta, var hún ekki lengi að segja: „Hættu nú, potturinn væni“, en þá var allt þorpið á kafi og allir sem vildu komast leiðar sinn- ar urðu að éta göng gegnum grautinn. KOBBI: Það hefur dugað þeim fyrir vikuna, trúi ég. TOBBA: Ég vildi, að potturinn hefði látið hér við sitja, en ekki farið af stað aftur. Ég er viss um, að eitthvað illt leiðir af þessu. Bóndinn hefur sjálfsagt orðið var við það og kemur að heimta aftur gullið. Farðu út í dyrnar og skyggnstu út. 74 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.