Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 30
Áfcngisvarnanefnd Akurcyrar veitti þrenn bókaverðlaun í Gagnfræðaskóla Akureyrar
í vetur fyrir ritgerðir um efnið: „Áfengi og skemmtanir". Þessi ritgerð hlaut 1. verðlaun.
ÁFENGI OG SKEMMTANIR
Eitt af alvarlegustu vandamálum æsk-
unnar í dag er áfengisnautnin og
skemmtanalífið. Stundum er sagt, að
tómstundirnar séu gullkorn tímans,
vegna þess að þeim getum við varið eftir
eigin höfði okkur til gagns og gleði.
Eins og eðlilegt er leitum við, sem ung
erum oft á almenna skemmtistaði, þegar
við eigum frí. Oftast stendur fullorðið
fólk fyrir þeim skemmtunum, sem við
sækjum, og það ber fyrst og fremst
ábyrgð á því, hvað þar fer fram. Flest
vandræði, sem fyrir koma á skemmtun-
um standa í sambandi við vínneyzlu ung-
linga, sem hvergi mega kaupa vín, hvað
þá neyta þess á opinberum stað og for-
ráðamenn skemmtistaðanna látast ekki
sjá þetta, þótt þeir viti, að drykkjuskap-
urinn eyðileggur skemmtunina fyrir
fjölda fólks, sem vill skemmta sér án
víns og hefur greitt aðgangseyri rétt eins
og hinir. Það er slundum eins og þeir
drukknu hafi meiri réttenþeiródrukknu,
þótt þeir megi lögum samkvæmt alls ekki
vera á skemmtistöðum. Astæðan fyrir
þessu hörmungarástandi er kannske sú,
að flestir skemmtistaðir eru reknir af
fullorðnu fólki, sem mest hugsar um að
afla fjár, en lítið kærir sig um á hvern
hátt það er gert. Mér finnst, að vín-
neyzla og skemmtun geti aldrei farið
saman. Gleðin, sem vínið vekur er ætíð
fölsk og verður oft að ævilöngu böli og
eymd. Þetta vita allir, þótt þeir viður-
kenni það ekki. Hefur nokkur talið það
Jífsnauðsyn, að maður væri drukkinn
við vandasamt verk t. d. við uppskurð
eða flugstjórn? Nei, en það er talið lífs'
hættulegt. Það er líklega ekki rétt að
líkja skemmtununum við þessi vanda-
sömu störf, en það getur líka verið mikið
í húfi, þegar vel er að gáð. Fólk hefui
slasazt alvarlega og jafnvel týnt lífinu
vegna drykkj u á skennntistað, en það ei'
þó algengara að Bakkus ræni menn vit-
inu. Það er hræðilegt, þegar tómstund-
unum, þessum gullkornum tímans, ei
sóað í svall, sem veldur sorg og böli i
stað þess að njóta þeirra við skemmtanir
og störf, sem skapa hamingju og gleði-
Bryndís Tryggvadóttir.
16 VORIÐ