Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 34

Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 34
bekknum, til að fullvissa sig um, að eng- inn hefði orðið var við það. Hún hallaði sér aftur á bak í stólnum og reyndi að láta sem ekkert væri, beit saman tönn- um og bað þess í hljóði, að skólabjallan hringdi sem allra fyrst. Með þennan mikla sársauka gekk hún í síðasta sinn út úr St. Nicholas skólanum, án þess að hafa hugmynd um það sjálf. Roddy hjálpaði henni heim, eins og svo oft áður. Nokkrum dögum síðar fann hún aftur til þessa skerandi sársauka í bakinu, og í þetta sinn hélzt hann miklu lengur, heldur en í skólanum á dögunum. Dag- inn eftir var Janis flutt á sjúkrahúsið. „Eg býst við, að þessar sjúku blóð- frumur hafi nú dreift sér um allt tauga- kerfi mergsins,“ sagði English, þegar hann hafði skoðað hana. „Það er bezt, að hún verði hér hjá okkur, svo að við getum linað eitthvað þjáningarnar.“ Janis bar ekki á móti því, þegar faðir hennar tilkynnti henni, að hún skyldi leggjast inn á sjúkrahúsið aftur. Það voru sársauka- og þreyludrættir í andliti hennar, en kjarkur hennar var óbilandi. „Eg er sannfærð um, að ég verð fljót- lega heilbrigð,“ sagði hún, „Bíðið bara við, eftir eina viku verð ég heima aftur“. Dr. English tókst nú enn þá einu sinni að fækka hvítu blóðkornunum með því að gefa henni enn þá sterkari spraulur. Eftir þrjá daga var hún komin á fætur °g bljóp nú á milli gamalla vina í eld- húsinu og stúlknanna á rannsóknarstof- unni. Einnig kom hún við á stofunum, þar sem yngstu sjúldingarnir lágu og taldi í þá kjark. IJún hitti þar Ijóshærða jafnöldru sína, sem hét Betty. IJún hafði verið skorin upp, og hafði hún miklar áhyggjur af að missa úr skólanum, svo að hún varð himinlifandi, þegar Janis bauðst til að lesa og reikna með henni. Dag nokkurn kom nýr sjúklingur inn á stofuna, sem Janis lá á. Það var lítil stúlka, Susie að nafni, og liafði Janis áður kynnst henni á sjúkralmsinu. Hun var mjög mikið veik og var því bæö* einmana og óttaslegin. Janis hughreysti Susie með því, að hún skyldi verða hennar einka vinkona. „Þú þarft alls ekki að kalla á hjúkrunarkonurnar, þ° að þig vanti eitthvað, láttu mig bara vita.“ Og þetta loforð hélt hún. Hún fæi'ði lienni vatnsglös, hjálpaði henni að mat- ast og hughreysti hana. Hún slétti ur rúmfötum hennar fyrir hvern lieim- sóknartíma og sagði: „Mundu nú, að láta ekki eitt einasta tár læðast fraiU) þegar mamma þín og pabbi koma, þau hafa víst nógar áhyggjur samt. Duglegust var Janis við að hjálpa hjúkrunarkonunum við litlu börnim Hún bjó um rúmin þeirra, las fyrir þau sögur og teiknaði litríkar myndir handa þeim. Eina nóttina vakti hún til morg- uns við að hughreysta Dennu litlu, sem var aðeins þriggja ára. Hún hafði lent i slysi og lá nú í gipsi. Daginn eftir til- kynnti yfirhjúkrunarkonan hálíðlega! að hér eftir væri Janis „aðstoðarhjúkr- unarkona“ á deildinni. Þrátt fyrir þennan mikla kjark og ein- beitni, sem Janis sýndi, var hún þó að- eins barn, sem fann lil einmanaleika 1 þessum slóra heimi sjúkrahússins. HuU hafði heldur aldrei gert sér í hugarlund hvert raunverulega stefndi með heilsU 80 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.