Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 47

Vorið - 01.06.1964, Blaðsíða 47
auðvitað glápt u allir á mig eins og eg væri afturganga. En verst þótti er að ég gat ekki farið í sundlaug- ai'tíma á eftir. Gunnhildur Stefánsdóttir, Akureyri. —0— SUÐURFERÐ í sumar sem leið var ákveðið að e8 fengi að fara með mömmu og Pabba suður til Reykjavíkur. Ég llafði aldrei áður komið suður og ^akkaði ég mikið til. Svo rann upp sá langþráði dagur, að við lögðum af stað og gekk ferðin vel. Ég sá ^a^’gt fallegt á leiðinni. Ég lield *?er hafi fundist fallegast í Borgar- fbði. Þegar við vorum komin suður 1 ^jarðvík um kvöldið, fór ég að 01 fa á sjónvarp, sem ég hafði aldrei «éð áður og fannst mér það gaman. Það var margt og mik- ^ að sjá þarna fyrir sunnan fyrir ara stelpu eins og mig. Ég var dftaf ag sj^ eitthvað nýtt. En það Sern ég held að mér hafi þótt mest ^arnan að sjá og heyra var að fara f jéðleikhúsið. Frændi minn bauð ? Ur með sér til að horfa á „Gísl“, þSlít leikrit, sem var verið að sýna. v er mikið ævintýri að koma í jéðleihhúsið og skoða það. Loftið í áhorfendasalnum er úr íslenzku stuðlabergi og uppi á lofti er mikill salur, sem við skoðuðum. Er hann nefndur Kristalssalur. Þar er mál- verk af Onnu Borg og fleiri leikur- um, þar sá ég t. d. mynd af Davíð Stefánssyni, skáldi. Þegar ég hátt- aði um kvöldið, sá ég fyrir mér alla þessa dýrð, þegar ég lokaði augun- um. Sigurlaug Tobíasdóttir, Akureyri. —0— AXLABÖNDIN Oft segir mamma okkur sögur af okkur sjálfum, þegar við vorum lítil. Ein sagan er svona: Mamma fór með okkur bræðurna, mig 2ja ára og bróðir minn 3ja ára á göngu. Við gengum fram hjá túni, þar sem hestur var á beit. Hann var með beizli og við höfðum aldrei séð hest með beizli fyrr. Þá hnippti bróðir minn brosandi í mig og sagði: Gunni, drengur, sérðu hestinn. Hann er með axlabönd á hausnum. Jóhann Gunnar Jóhannsson, Akureyri. Kennarinn: Hvað ertu gamall, Pétur? Pétur: Sex óra. Kennarinn: Hvenær varztu það? Pétur: Á afmælinu mlnu. VORIÐ 93

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.