Vorið - 01.09.1966, Blaðsíða 12
En ég get látið þig hafa stöðu við ein-
hverja af verksmiðjum okkar, en ég v.il
ekki verða húsbóndi þinn. Ég vil þess
vegna biðja þig að taka við þessari á-
vísun og svo getur þú sjálfur valið þér
starf, sem helzt er að þínu skapi.“
Síðan rétti hann Bob ávísunina, en Bob
vildi ekki taka við henni fyrr en herra
og frú Dennison höfðu gengið lengi á
eftir honum.
„Þú bjargaðir lífi mínu úti á eyði-
mörkinni og ég vona að það sé ekki
minna virði en þessir peningar,“ sagði
Fred. „En þú mátt ekki skilja það svo,
að ég með þessum peningum hafi graitt
skuld mína við þig. Hana get ég ekki
greitt með neinni peningaupphæð. Þetta
er aðeins þóknun fyrir þrekvirki þitt og
fórnfýsi fyrir félaga þinn norður í eyði-
mörkinni.“
Svona fór það, að Bob, þrátt fyrir allt,
fann atvinnu í stóru og ókunnu landi,
þar sem hann vonaðist til að finna ham-
ingjuna.
Þýtl úr dönsku. H. J. M.
106 VORIÐ