Vorið - 01.09.1966, Blaðsíða 26

Vorið - 01.09.1966, Blaðsíða 26
þau sjá Áka næstum uppi á brún á Bröttubrekku. — Halló, halló, svara þau á móti, og stefna til hans og feta sig upp brekk- una. Áka finnst þau vera svo hlægilega lítil meðan þau eru lengra burtu. En þau nálgast óðum. — Hvernig liefur þú komist hingað upp? Agnar frá Gelmói stendur þarna blóð- rjóður í framan og lafmóður, og þurrk- ar svitann af enninu. — Hvernig hefur þú komist hingað upp? Það er reiðitónn í svari Áka, eins og hann sé gramur yfir einhverju, og Agn- ar hreyfir sig aðeins til og lítur til hinna, sem koma á eftir honum. — Við ■—- við göngum, svarar hann að lokum. — Það geta aðrir líka gert. Áki segir ekki meira. Það er bezt, að þeir komist að því sjálfir, hvað hann á við. En það virðist ekki vera auðvelt. Þeir standa þarna og glápa, eins og þeir skildu ekki neitt í þessu. Þá áttar hann sig á, að það eru blóðblettirnir, sem þeir horfa á, rifnu buxurnar og óhrein- indin á honum. — En ég gekk of hratt og það borgar sig ekki, bætti hann við. Svo horfir hann niður á fötin sín og brosir, og þá Jrora hinir líka að brosa. — Húrra fyrir Björndælingum, kall- ar hann glaðlega, því að hér hefur hann alla sína félaga. Þeir eru komnir til að vera með honum og nú skal verða gam- an — Þarna eru allir knattspyrnudreng- irnir í kringum hann. Kafrjóðir og móð- ir bíða þeir eftir, að hann segi meira, og hann skilur hvað þeir vilja ræða um. ■—• Það er ekki nein ástæða til að þakka þeim þetta, segir hann. Auðvitað á hann við Valladrengina, og allir eru þeir sammála þessu. Svo ræðir hann uffl alla fletina, sem þeir hafa neðan við bæ- inn. Svo lýsir hann ástandinu í Bjarn- ardal, þennan litla flöt, sem þeir hafa lil æfinga með trjástubbum og steinum og áin fast við, sem tekur knöttinn, ef hann lendir í hana. Áki er ákafur meðan hann talar, og vekur áhuga hjá hinum. Hann teiknar myndir í loftið með hækjunni og gerir Jaetta allt meira lifandi. Nú ræddi hann um leikvanginn. — En þetta eru eng.in vandræði fyrir okkur, sem höfum Móinn, ef við bara ryðjum hann. — já, segja hinir, eins og þeim hafi aldrei komið þetta í hug áður. — Og búninga og rétta skó verðum við að fá okkur, bætir hann við. — Já, já. — Og búningsklefa, lítið hús með skorsteini og ofni. — Já, já. Áki talar stanzlaust og hinir hlusta á hann, ákafir. Hugarflugið er mikið, og allt er þetta svo auðvelt, meðan hann talar um það. Það liggur þó ljóst fyrir, að Jjeir verða að fá góðan leikvang, og Jieir verða að byggja lítið búningshús og þeir verða að fá —-------- Á meðan kemur maður á skyrtunni nær þeim. Það er Lúðvík frændi. Hann sér ekki skýrt hverjir eru uppi í brekk- unni, það líður nokkur stund, þangað til hann sér þann, sem hann leitar að, en J)á snýr hann við og hverfur aftur. 120 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.