Vorið - 01.09.1966, Blaðsíða 44

Vorið - 01.09.1966, Blaðsíða 44
 Kæra Vor. Eg þakka þér fyrir al.lt skemmti- lega efnið, sem þú flytur og vona, að þú haldir áfram á þeirri braut, sem þú ert byrjað á. Nú langar mig til að senda þér sanna frásögn, sem gerðist hér heima. Og hér kemur frásagan: GÆSIRNAR Vorið var komið. Sólin skein og fuglarnir sungu. Eg, systkini mín og einn frændi minn löbbuðum út á engjar til að gá að kindum. Þegar við vorum komin að skurði einum, er Stekkja- kelda heitir, tökum við eftir kind með tveimur lömbum. Er við gáum betur að, sjáum við að þetta er hrút- ur og gimbur, (réttara sagt lamba- kóngur og lambadrottning). Nú, ei' við höfðum nægan tíma, datt okk- ur í hug að fara að leita að grágæs' areggjum. Eins og allir vita, er gra' gæsin mikið í túnum og veldur ó- hætanlegu tjóni. Er við höfðum gengið lengi ufli svonefnda Kaldaðarnesmýri, finU' um við álftarhreiður með 5 eggj' um. Við tókum eitt þeirra í eggja' safn, «em við systkinin eigum. Nn vorum við orðin vonlítil um að finna nokkurt grágæsarhreiður og snérum því heim. Þegar við vorum um það bil hálfnuð heim, flaug grágæs upp, rétt fyrir framan okk' ur. Við gætturn betur að, og fund' um þá hreiður með 5 eggjum. Vi^ tókum öll eggin og héldum áfraU1 glaðari í bragði en áður. Er við átt' um stutt eftir heim, segir eldri bróð' 138 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.