Vorið - 01.09.1966, Blaðsíða 41

Vorið - 01.09.1966, Blaðsíða 41
Tíminn leið og Tígur frænda fannst hann lengi að líða. Það var kominn háttatími, bráðum kæmi sólin í ljós, og hann var hræðilega svangur. Eftir því sem hann beið lengur, varð hann reið- ari 0g reiðari við refamömmu, hvað hún lét biða lengi eftir sér. Allt í einu heyrði hann hávaða við grenisopið — smá gelt, og svo sá hann litla, vitra höfuðið a fefamömmu í göngunum. Skær augu hennar horfðu á hann. — Ó, afsakaðu, frændi, sagði hún. ~~ Það var óþarfi að við skyldum gera þér þetta ónæði! Refapabbi er búinn að homast að niðurstöðu! Hann segir, að fallegu og vitru börnin hans líkist al- gjörlega fallegu og vitru konunni hans. "Afsakið, er hér númcr fjögur?" Á ég ekki góðan og velviljaðan mann? Tígrisdýrið svaraði reiðilega og slengdi fætinum að holunni. En refa- mamma var fljótari. — Vertu sæll, frændi, sagði hún. Skær augu hennar ljómuðu í dimm- um göngunum. Hún fitjaði upp á nefið og hló, svo hljóp hún inn í ganginn og hvarf — í öryggi hjá refapabba og fimm feitu ungunum langt niðri í holunni. Fyrir tígrisdýrið var engin leið önnur en fara heim að sofa — matarlaust. Hér eftir sagði refapabbi alltaf. — Ég á fallega og vitra konu og fimm fal- leg börn, sem líkjast henni algjörlega! Ég er hamingjusamur! /. S. þýddi. „Biddu aðeins. Hann er að taka ó hjó mér." VORIÐ 135

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.