Vorið - 01.09.1966, Qupperneq 48
Ég sagði honum svolítið frá útreikning-
um mínum og svo bjó hann til nokkur
dæmi um það, hvað hvert svöluhreiður
væri þungt og hversu mikið hver munn-
fylli af leir og væri mikið — og um flug-
vegalengdir og allt slíkt og þessi dæmi
áttu svo drengirnir að reikna. Ég held,
að þetta hafi borið betri árangur en þótt
þeir hefðu fengið nokkra löðrunga.
— Já, það er liverju orði sannara,
pabb.i, sagði Óli. — Þeir áttu að reikna
öll dæmin heima, og þú veizt að við
erum ekkert hrifin af því.
— Sjáið þið hvað þær fljúga hátt í
dag, sagði Metta. — Þá verður gott
veður áfram.
Þetta skildi Lassi ekki, en Óli útskýrði
fyrir honum, að það væri nokkuð, sem
gamla fólkið sagð.i: „í góðu veðri
fljúga skordýrin hátt, í röku lofti neð-
arlega, og þá haga svölurnar sér alveg
eins. Við sjáum þær niður við vatnið
á hverjum degi. Þær fljúga þar alveg
niður við vatnsskorpuna og grípa mý-
flugurnar, þegar þær koma þangað til
að verpa eggjunum.“
Lassi sat lengi og horfði á iðnu svölu-
hjónin. Allt í einu datt hvít klessa niður
í andlitið á honum. Börnin hlógu. —
Láttu þér standa á sama, sagði Stína.
— Þetta boðar hamingju, segir máltæk-
ið. En farðu að vatnsdælunni og biddu
Mettu að þvo þetta af þér.
— Já, sagði Óli. — Vertu feginn, að
þetta var ekki einn af storkunum, sem
langaði til að gera þig hamingjusaman,
þá hefðurðu fengið að kenna á því!
/. S. þýddi.
GÁTU R
1. Ilvað er það, sem hefur tvo fótleggi og tvo
fætur, en getur þó ekki gengið?
2. Hvað er það, sem er fullt af holum, en
ekki er hægt að hella vatni í?
3. Hve mörgum sinnum er hægt að draga töl-
una 18 frá 180?
4. Ilvað er það, sem verður stærra við það
að snúa því við?
5. A daginn er ég fullur af kjöti og blóði, en
á nóttunni stend ég tómur. Hver er ég?
6. Hver hefur fjóra vængi en getur þó ekki
flogið?
7. Það er ekki inni, og það er ekki úti, menn
sjá það daglega. Hvað er það?
Ráðningarnar eru. á bls. 140.
BARNABLAÐIÐ MAGNI 75 ÁRA
Þann 15. apríl síðastliðinn átti norska
harnablaðið Magni 75 ára afmæli. I
tilefni af afmælinu kom út myndarlegt
afmælisblað.
Magni er gott og skemmtilegt barna-
blað, myndskreytt. Blaðinu hefur tek-
ist að sameina það tvennt að taka upP
nýjan búning en flytja norskum börn-
um sígildar hugsjónir.
Magni hefur alltaf verið bindindis-
blað, og er nú gefið út af norskum bind-
indissamtökum.
Vorið óskar Magna til hamingju með
afmælið og þakkar ágætt samstarf a
liðnum árum.
E. Sig.
LESENDUR VORSINS!
SýniS vinum ykkar VoriS og spyrjiS ]>á, hvort
]>eir vilji ekki gerast kaupendur aS ]>ví.
SendiS áskrift.
VORIÐ,
Pósthólf 177,
Akureyri.
142 VORIÐ