Vorið - 01.02.1974, Blaðsíða 4
Bréf til lesenda
Efni Vorsins hefur einnig breyst við stækkun blaðsins. Fram-
haldssagan um Grant skipstjóra og börn hans lauk í síðasta
hefti 1973. Nú byrjar ný og skemmtileg framhaldssaga og er
hún mun styttri en sú síðasta. Hún heitir Kolskeggur og aðal-
persónur sögunnar eru ungur drengur og hesturinn hans Kol-
skeggur.
Jafnframt byrjar ný myndasaga eftir Mark Twain, Ævin-
týri Tomma (Tom Sawyer). Báðar þessar sögur eru heims-
frægar og hafa hvarvetna orðið vinsælar. Fylgist með frá upp-
hafi.
Ennfremur birtast í næstu 6 heftum smásögur um dýr, þær
nefnast, Lítið ævintýri og fylgir mynd með hverri sögu.
Þá birtum við skrýtlur í myndum af heillakallinum skemmti-
lega Lúðvík.
Síðast en ekki síst, viljum við minna á nýjan þátt og er ætl-
unin að birtá bréf, sögur, ljóð og annað, sem Vorinu berst frá
ykkur. Vonum við að þið verðið dugleg að skrifa og teikna og
senda okkur. Það væri gaman, að þið sendið tillögur um nafn
á þennan nýja þátt. Þangað til notumst við við nafnið Efni frá
lesendum. — Þetta bréf verður ekki lengra.
Góða skemmtun!
4
VoR|f)