Vorið - 01.02.1974, Side 14
Slæm samviska
Leiksviðið er gangur í skrifstojubygg-
ingu. Dyr að tveirn skrifstofum standast
á. Til vinstri er skrifstofa Jóns Jónsson-
ar I, sem selur gamla bíla, en til hægri
er skrifstofa Jóns Jónssonar II, sem sel-
ur gömul hús. Forstjórarnir sitja við
vinnu sína. Áhorfendur sjá inn í báðar
skrifstofurnar og ganginn á milli þeirra.
(Nægilegt að skipta leiksviðinu með
tveim flekum).
Priðji leikandinn er Sveinn fulltrúi
bæjarfógeta, sem kemur inn á ganginn
og les nafnspjaldið á skrifstofuhurð Jóns
Jónssonar, bílasala.
S: Já — alveg rétt. Jón Jónsson heitir
maðurinn. (Leitar í skjalatösku sinni og
tekur fram umslag. Stendur heima, Jón
Jónsson, Stórlaxagötu 10. P*að er hér.
(Bankar).
J I: Fíom inn.
S: (Gengur inn). Góðan dag. Ég heiti
Sveinn Sveinsson ....
J I: (Grípur fram í). Kemur mér
ekki við . . .
S: Ég er frá bæjarfógetanum.
J I: (Til áhorfenda. Talar við sjálfan
sig). Það er sjálfsagt vegna bílsins um
daginn. Auðvitað var skrjóðurinn ónýtur
þegar ég seldi hann, en maður er nú ekki
LEIKSVIÐ
Jón II ^ Gangur ^ Jón I
skyldugur til að segja frá öllu. — Slysið
— nú það var bara klaufaskapur.
(Við Svein). Það hlýtur að vera hann
Jón hérna handan við ganginn, sem þér
eigið að finna. Hann er við núna, aum-
ingja maðurinn.
S: Heitir hann líka Jón Jónsson, sa
sem hefir þá skrifstofu. Fyrirgefið ónæð-
ið. Sælir.
J I: Það var ekkert. Sælir.
S: (Fer og lokar hurðinni. Á gangin-
um). Mikil lifandi ósköp eru annars til
af þessum Jónum. (Ber að dyrum hjá
Jóni II).
Jón II: Kom inn.
S: Sælir.
Jón II: Sælir. Gjörið svo vel að ganga
inn.
S: (Gengur inn).
Jón II: Hvað get ég gert fyrir yður,
maður minn.
S: Ég heiti Sveinn Sveinsson.
J II: Gleður mig að kynnast yður. Ég
heiti Jón Jónsson.
14
VoR'e