Vorið - 01.02.1974, Side 18
FXUGKOÐEtÞftTTURI »H
Umsjón: Þorgeir Logi Árnason
Jonathan Livingslon Májur.
Um síðustu jól kom út hér á landi
bókin „Jonathan Livingston Máfur,“
sem var metsölubók í útlöndum stuttu
áður. Eins og venja er var bókin kvik-
mynduð, en í henni leika aðeins máfar.
Bókin fjallar um máf, sem verður leið-
ur á að hugsa ekki um annað en mat,
eins og allir máfar gera, svo að hann fer
sínar eigin leiðir í leit að æðra takmarki.
Hann reynir að ná fullkomnun í flugi og
með stanslausri þjálfun nær hann svo
langt að hann er tekinn í æðra samfélag
máfa, þar sem flugið og hugsunin er öllu
æðra.
Við gerð kvikmyndarinnar voru not-
aðir tamdir máfar að miklu leyti, en þar
sem ekki er hægt að láta þá leika flug-
listir, svo sem fljúga á hvolfi eða taka
bakfallslykkju (loop) varð að grípa til
annarra ráða.
Framleiðendur myndarinnar báðu því
12 framámenn í módelflugi að smíða
fjarstýrða máfa og gerðu þeir það.
Aðeins ein tegundin flaug nógu vel til
að hægt væri að nota hana við töku
myndarinnar. Sá sem smíðaði og teikn-
aði máfinn sem nothæfur var, heitii'
Mark Smith, ungur maður frá Kali-
forníu, sem hefur nokkrum sinnum orð-
ið Bandaríkjameistari í módel-svifflugi-
Módelið var af sviffluggerð, öll hin mó-
delin voru með mótor.
Smíðaðar voru fjarstýritæki og Mark
þurfti að læra alveg nýja flugtækni, af
því að flugmódel fljúga ekki eins og
fuglar, en þetta var erfitt verkefni, enda
eyðilagði Mark nokkur módel við æfing-
arnar. Á meðan smíðuðu hann og faðii'
hans 15 módel af máfum í viðbót, þvi
að nú átti að fara að kvikmynda.
Við kvikmyndunina var flogið stans-
laust allan daginn framan við klettabelti
við ströndina, þar sem hafgolan skapaði
mikið uppstreymi. Stundum þurfti að
kvikmynda tvo máfa á flugi saman og
þá flugu feðgarnir sitt hvorum fuglinum,
því að faðir Mark er gamalgróinn módel-
18
VORIO