Vorið - 01.02.1974, Side 32
SAGAN AF GÝPU
Úr þjóðsögum Ólafs Davíðssonar.
Einu sinni var karl og kerling í koti. Þau áttu dóttur, sem
hét Gýpa, og þótti hún matfrek í meira lagi. Kú áttu þau, sem
hét Kreppilhyrna. Einu sinni áður en Gýpa fór að smala, át
hún úr askinum sínum og askinn með, karl og kerlingu, kúna
Kreppilhyrnu og kotið með. Svo hélt Gýpa af stað. Þegar hún
hafði gengið um stund, mætti hún tófu. Gýpa spyr hana að
heiti. Hún segist heita Refur rennandi. Refur spyr Gýpu að
heiti. Hún segir til nafns síns. „Hvað áztu í morgun, Gýpa
mín?“ spyr Refur. „Ég át úr askinum mínum og askinn með,
karl og kerlingu, kúna Kreppilhyrnu og kotið með, og eins
mun ég gera við þig, Refur rennandi,“ sagði Gýpa, og svo
gleypti hún refinn. Gýpa gekk nú lengi lengi, þangað til hún
mætti bjarndýri. Hún spurði það að heiti. Það kvaðst heita
Björn betlandi. Björn spurði Gýpu að heiti. Hún sagði sem
var. „Hvað áztu í morgun, Gýpa mín?“ spyr björninn. „Ég
át úr askinum mínum og askinn með, karl og kerlingu, kúna
Kreppilhyrnu og kotið með, Ref rennanda og eins mun ég
gera við þig, Björn betlandi,“ sagði Gýpa, og svo gleypti hún
björninn. Skömmu seinna kom Gýpa að sjó og hitti þar menn
á skipi. Þeir spurðu hana heiti. Hún sagði af hið sannasta.
vor|Ð
32