Vorið - 01.02.1974, Qupperneq 36

Vorið - 01.02.1974, Qupperneq 36
KOLSKEGGUR Hér byrjar ný framhaldssaga. Aðalsögupersónurnar eru drengurinn Alek og hestur, sem heitir Kolskeggur. .Fylgist með frá byrjun. Á heimleið úr sumarleyfi. Flutningaskipið „Drake“ klauf breið- ar öldur arabíska hafsins, og Indlands- strönd var að hverfa í blámóðu fjarlægð- arinnar. „Drake“ var á heimleið, og ein- hversstaðar þarna langt í vestri var næsti áfangastaður, Aden. Allar lestar voru fullar af kaffi, rísgrjónum, te, ólífukjörn- um og jútu. Svartur reykurinn valt upp úr reykháfnum og skyggði á heiðbláan himininn. Alexander Ramsey, yngri, sem aldrei var kallaður annað en Alek, þegar hann var heima í New York, lá úti við borð- stokkinn og horfði niður í sjóinn, sem virtist þjóta með ofsahraða fram hjá skipshliðinni. Rauða hárið stakk í stúf við allan blámann og sólbrennt hörundið — það var eins og hin heita sól hitabelt- isins hefði kveikt í því. Svo leit hann enn einu sinni í áttina til strandarinnar, sem var að hverfa. þetta höfðu verið ævintýralegir dagar — þessir tveir mánuðir í Indlandi. Mikið mundi hann sakna Ralphs frænda og dvalarinnar með honum í frumskógun- um. Hann mundi sakna öskurs pardus- dýrsins og allra hinna seiðandi hljóða frumskóganæturinnar. Aldrei skyld' hann láta segja sér það, að störf trúboð- anna væri leikur fyrir ævintýramenn og slæpingja. Nei, trúboðsstarfið krafðist mikils. Dögum saman varð trúboðinn að ferðast á hestbaki um ófærur frumskóg' arins. Alek leit með aðdáun á staelta handleggsvöðva sína. Ralph frændi hafð1 kennt honum að sitja hest — ekkert 1 heiminum hafði hann þráð meira, en að þjóta um grænar grundir á fráum fáki- Nú var þetta allt liðið. Pegar hann kæmi heim, mundi hann aldrei fá tseki- færi til að spretta úr spori á góðum ga^ð' ingi. Hann opnaði hnefann, sem hélt uin skaftið á vasahnífnum með perlumóðu1' skaftinu, leit á gripinn með aðdáun °S las hina gullnu áletrun: „Til Aleks á aj' mælisdaginn í Bombay á Indlandi- Hann minntist orða frænda síns: er alltaf notalegt að hafa góðan hníf v' höndina, Alek.“ Allt í einu lagði einhver höndina 3 VoRiP 36

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.