Vorið - 01.02.1974, Qupperneq 39

Vorið - 01.02.1974, Qupperneq 39
barðist enn um í básnum og virtist ekki Þreytast. Það voru viðburðarríkir dagar, sem nú fóru í hönd, og allir höfðu nóg fyrir stafni, bæði farþegar og áhöfn. Aldrei hefði Alek trúað því, að nokkur skepna gseti haft slíkt úthald —verið svona villt. ^lla nóttina buldi í þilfarinu undan hófasparkinu. Það var búið að styrkja utveggi bássins eins og hægt var. Svart- klæddi maðurinn var ennþá dularfyllri en áður og hann talaði ekki við nokkurn ^aann nema skipstjórann. ..Drake“ sigldi í gegnum Suezskurð- hin 0g inn í Miðjarðarhafið. Eitt kvöldið læddist Alek út á þilfarið, nicðan hinir farþegarnir sátu yfir spil- Uln. Hann hlustaði. Sá svarti var rólegur f kvöld. Alek flýtti sér yfir að klefanum. Eyrst gat hann hvorki séð né heyrt neitt, en svo smávandist hann myrkrinu og þá Sa hann, að folinn hafði stungið hausn- 11 ni út um gluggann á klefanum, og nú Sa hann ljósrauðar nasaholurnar. Alek nálgaðist hann varlega. Hann stakk hendinni í vasann og leitaði að ^ykurmola, sem hann hafði stungið á sig. ^ann stóð áveðurs, svo hesturinn hafði ekki orðið hans var enn. Nú var hann að komast að honum. Það var eins hesturinn horfði út á hafið — út í jarlægðina, eyrun voru sperrt, titringur °r um flipana og faxið blakti í vindin- 11111 • Alek gat ekki slitið augun frá hon- Urn- Það gat ekki verið, að slíkt dýr væri Þarna, svona rétt hjá honum. Allt í einu kipptist hesturinn við og 0rn nú auga á drenginn — það var sem e dur brynni úr augunum. Og nú kvað Vln aftur þetta nístandi óp, skerandi VOrið vein, og barst út í nóttina, og hesturinn hvarf inn í básinn. Alek tók sykurmol- ann upp úr vasanum og lagði hann í gluggakarminn. Svo fór hann aftur inn til sín. Þegar hann þorði að læðast aftur út að básnum sá hann, að sykurmolinn var horfinn. Eftir þetta stalst Alek á hverju kvöldi út á afturþilfarið, lagði sykurmola í gluggakarminn og fór svo aftur inn til sín. Stundum gat hann séð folann í básnum, en annars heyrði hann aðeins hófasparkið, þegar hann lamdi sterkum fótunum í þilfarið. Óveðrið. „Drake“ kom við í Alexandríu, Bengasi, Tripóli, Túnis og Algeirsborg, sigldi gegnum Njörvasund og tók stefn- una norður með Portúgalsströndum. Nú var skipið statt undan Finisterre- höfða á Norður-Spáni og „eftir tvo til þrjá daga verðum við komnir til Eng- lands,“ sagði Watson skipstjóri. Alek var oft að hugsa um það, hvers vegna væri verið að senda svarta folann til Englands. Skyldi eiga að hafa hann þar til kynbóta, eða átti hann að verða veðhlaupahestur? Pessir ávölu bógar, þessi mikla, breiða bringa, sterklegir fætur og hnén, sem hvorki sátu of hátt né of lágt, allt bar þetta vitni um þrek og hraða, það hafði frændi hans kennt honum. Petta kvöld fór Alek aftur á þilfarið, þangað sem básinn var, með vasana fulla af sykurmolum eins og vanalega. Kvöldið var kyrrt og heitt í veðri. Loftið var þungbúið og það sást ekki til stjarn- anna. Langt í fjarska mátti sjá eldingar leiftra. Svartur hafði stungið hausnum út 39

x

Vorið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.