Bjarmi - 01.01.1972, Qupperneq 1
r
Bjarni Eyjólfsson, ritstjóri Bjarma,
andaðist þriðjudaginn 18. janúar
s.l., eftir langvarandi vanheilsu, og
fór útför hans fram fimmtudaginn
27. sama mánaðar að viðstöddum
miklum mannfjölda.
Bjarni var aðalritstjóri „Bjarma"
frá ársbyrjun 1936 og til dauða-
dags, eða í 36 ár. Eins og stund-
um hefur verið minnzt á, má
segja, að forsíðan á fyrsta tölu-
blaðinu, sem kom út undir ritstjórn
Bjarna og okkar félaga hans í árs-
byrjun 1936, hafi markað stefnuna,
sem blaðið fylgdi æ síðan, að flytja
orð krossins, fagnaðarerindið um
Bjarni Eyjólfsson
i'ifKÍjóri lljarma
F. 14. ágúst 1913 - D. 18. jan. 1972
Jesúm Krist, og fræða um þann
grundvöll, sem Drottinn Jesús lagði
oss til sáluhjálpar með friðþægingu
sinni fyrir syndir vorar og upprisu
hans oss til réttlætingar.
f ávarpinu, sem „Bjarrna" var
fylgt úr hlaði með í þessu sama
tölublaði, er komizt að orði á þessa
leið:
,,Vér sjáum margt í samtíð vorri,
sem berjast þarf gegn. Guðleysi
hefur verið tízka undanfarin ár og
er tízka enn hjá fjölda manna. En
hjá sumum ristir það dýpra en að
vera tízka, það hefur náð dýpstu
hjartarótum og er orðið þeim eilíft
banamein. Það er orðin skipulögð
sókn á ríki Guðs. Gegn þeirri stefnu
mun blaðið eins og áður berjast.
Margt er það, sem stimplað er
„helgað Drottni" og borið fram í
nafni heilagrar kirkju, en er þó hug-
arsmíðar manna og gengur í bága
við fagnaðarerindið, mannlegar
stefnur, sem reka hið heilaga burt,
en setja manninn í staðinn, þótt í
hjúpaðri mynd sé. Gegn slíku mun-
um vér berjast.
Og svo loks svefninn. Fyrir hann
hefur málefnið hlotið margan hnekki.
Fyrir því mun blaðið í framtíðinni
reyna að halda vakandi meðvitund
lesendanna um hin veigamestu at-
riði kristindómsins, til þess að lín-
Framh. á bls. 13.