Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1972, Blaðsíða 16

Bjarmi - 01.01.1972, Blaðsíða 16
Bljarmi biríir hér nohkui' bréf. rAa hafla iír fn'ini. sem bárust scint á síAasta ári nif snemma á þessu ári. írá hristniboáunum í Giilole. I þeim cr hicúi fróöleihur oij upfiiirrunili fréttir. scm ís- lenzhum hristnihoósrinum mun eflaust þifhja nohhur fcnifiir aiH. AIVD- STAÐAA ER UÖUth EN GVÐS IKÉKI VINNER * A Frá Gídóle og Konsó Gidole, 11. okt. 1971. Kæri vinur. Ég fór á samkomu úti í hér- aði í gær. Við Jóhannes ókum á sjúkrahúsbílnum niður í bæ- inn hér fyrir neðan og fórum síðan fótgangandi um snar- bratta giiskorninga og gljúfur, sem voru þó öll þakin alls kon- ar gróðri, og jafnvel í bröttustu brekkunum voru akurspildur, sem fólk hafði nýlega hreinsað, enda má segja, að nú standi yfir haustregntíminn. I gær og í dag hefur veður verið hið bezta, en annars hefur verið hér íslenzk haustveðrátta, þokur, rigningar og kuldi, svo að ekki dugar ann- að en klæða sig í þykkar peysur. Ég varaði mig ekki á hlýjunni í gær, og þegar neðar dró i fjalls- hlíðarnar, var eg farinn að fækka fötunum. E|»|»haf krÍNini » Giilole. Leið okkar lá til staðar, sem heitir Garda. Segja má, að þar hafi fyrst kviknað Ijós kristin- dómsins í Gidolehéraði. Norsk- ur kristniboði hafði fengið ung- an mann með sér frá Addis Abeba til þess að prédika, og hann fór einn síns liðs hingað upp í fjöllin og boðaði anda- dýrkendum Krist. Honum var tekið fálega. Þó leyfði fjölskylda nokkur honum að eiga athvarf í húsum sinum, en rétt við hús- in stóð voldugt tré, sem talið var að andi ætti aðsetur í. Einn daginn bar það til, að tréð brotnaði með braki og brestum, án nokkurrar sýnilegrar ástæðu. Þetta hafði þau áhrif, að menn fóru að leggja hlustir við erindi prédikarans, og nokkrir menn vildu taka trú. Kirkjan í Garda stendur rétt við tréð, og nokkur hluti bygg- ingarefnisins er úr trénu. Jó- hannes spurði tvo menn, sem þarna voru, hvort þeir myndu eftir atburðinum. „Já, tréð brotnaði, daginn sem við sner- um okkur til Krists“, svaraði annar þeirra. Þótt þetta hafi ekki verið ýkja merkilegur at- burður í okkar augum, markaði hann upphaf kristinnar kirkju hér um slóðir. I rás tímanna hafa margir hér játað nafn Krists, en því er ekki að leyna, að sumir þeirra hafa horfið aft- ur út í heiðnina, og andstaða heiðingjanna, sem standa á móti, er orðin harðari en áður. Ég er hér að tala um Garda, en sama sagan hefur gerzt viðar. Kann þar margt að koma til, en ein helzta ástæðan er sú, að vöntun er á mönnum, sem geta frætt þá, er trú hafa tekið, svo að þeir staðfestist í ákvörðun 1« IIJARMI

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.