Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1972, Blaðsíða 29

Bjarmi - 01.01.1972, Blaðsíða 29
Enginn tók piltinum eins vel og Billy Graham. „Við verðum að hlusta á unga fóikið“, sagði hann. Um kvöldið reyndi pilturinn að þrengja sér inn bakdyramegin inn í Westfalen Halle. Dyraverð- irnir vörnuðu honum inngöngu og beittu ekki beinlínis vettlingatökum, enda rifnaði frakkinn hans. Stúdentinn rann af hólmi — og dyraverðirnir keyptu handa honum nýjan frakka. Kvöldið eftir sat hann í salnum — í nýja frakkanum og með unnustu sína við hlið sér. Þýzki túikurinn stóð við hlið Billy Gi’ahams í ræðustólnum. Aðrir túlkar sátu í básum til hlið- ar við ræðustólinn. Þeir túlkuðu á frönsku, kró- atísku, flæmsku, dönsku, velsku og norsku. „Við töiuðum í trú“, sagði einn þeirra eftir samkom- urnar. „Við vorum þar, sem atburðirnir voru að gerast, en samt fannst okkur við vera að nokkru leyti utangarna. Við höfum t. d. ekki hugmynd um, hvort það, sem við sögðum, náði heim til okkar. Við vorum tveir saman frá okkar landi, og var okkur úthlutað klefa, sem var eins og tveir sím- klefar að stærð. Tveir menn komust þar fyrir, en þröngt var á þingi. Og þegar við hreyfðum handleggina, eins og til þess að reyna að fylgja Billy Graham betur eftir í ræðunni, varð árang- urinn oft sá einn, að við gáfum hvor öðrum oln- bogaskot.“ Billy Graham ræddi daglega við hóp nánustu samstarfsmanna sinna, en þegar þeim fundi var lokið, hitti hann túlkana að máli og talaði við þá í klukkustund hverju sinni. Var þá farið yfir ræðuefni kvöldsins. Stundum ætlaði hann að nota einhverja mynd eða líkingu, og var þá hugsan- legt, að hún ætti ekki við í Evrópu. Þá gat vilj- að til, að hann notaði orðalag, sem var sérstak- lega bandarískt, og var þá nauðsynlegt að út- skýra merkingu þess fyrir túlkunum. Það var ómetaniegt fyrir túlkana að fá þannig að ræða við Graham um efni hverrar prédikunar, og auk þess tókust með þeim kynni og samfélag, sem efldi þá gagnkvæmt, hvern til síns hlutverks. „Ég stóð fyrir framan tjaldið, og mér fannst ég vera hræsnari“, segir einn þeirra, sem gaf sig fram á samkomunum. „Ég spurði sjálfan mig, hver væri ástæðan. Hvað er ég að gera? Mig langaði til að snúa við og setjast aftur. En ég sagði við sjálfan mig: Hér stendur þú. Þú hefur viðurkennt, hvernig þú ert á þig kominn. Ég vissi, að þetta var rétt. Ég hafði vænzt meira en þessa, ef til vill sterkra tilfinninga.“ Tuttugu og átta ára tæknimaður var heima hjá móður sinni og las um herferðina í kross- ferðarblaðinu. „Mig langaði til að fara. Ég sótti nokkrar sam- komurnar með konu minni. Síðasta kvöldið geng- um við bæði fram, þegar Billy Graham hvatti menn til þess. Á samkomunum hafði hann talað til okkar allan tímann. Við urðum að taka ákvörðun.“ Hann veit, að það var hið eina rétta. Nú þráir hann að vaxa í trúnni. „Það er eins og mig vanti eitthvað," segir hann. „Ég heyrði einu sinni trúaðan mann segja, að hann sæi „ljósið“. En þetta stafar ef til vill af því, að menn eru ekki kristnir aðeins á enn einn veg.“ Fridtjov Birkeli, biskup í Noregi, var einn þeirra, sem fagnaði samkomunum. „Vér náðum þarna til fólks, sem vér hefðum annars aldrei haft nein tengsli við. Kirkjan hefur notað fjöl- miðlana árum saman. En vér verðum að finna nýjar aðferðir til þess að færa oss þá betur í nyt. Enifinn einntalilinfiur hrlur tluít jaínmiirq- um í a fi imiliirrr i n il i ií oii Itillfi tlraham. Mls Htaiinr er inil.il ait- HÓhn víóu iim heim, Ofl íjöldi ntiinna fienq- ur Krinti á hiinil. BJAHMI 20

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.