Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1972, Blaðsíða 28

Bjarmi - 01.01.1972, Blaðsíða 28
MABUR KOM FKfiAM Þáttur um Billy Graham 1 síðustu tveim tölublöðum var sagt írá samkomunum, sem haldnar voru í Dortmund í Þýzkalandi. Var sjónvarp- að þaðan til ellefu landa. Einnig var í síðasta tölublaði útdráttur úr einni ræðu Billy Grahams. Ég hef verið trúaður, kristinn maöur meira en 30 ár, og það hefur verið erfitt, mjög erfitt. En það hefur einnig verið auðvelt. Ég bið þig ekki að koma á leikvöll eða íþróttaleikvang, heldur á vígvöll, þar sem andleg öfl sækja að þér úr öll- um áttum. Þú verður að heyja baráttu dag hvern, en þú munt hafa sigur frá degi til dags Þar get- ur þú einnig fundið þau svör, sem ungt fólk leit- ar að um allan heim.“ — Ciiff Barrows er afbragðs samkomustjóri, og hann er allur á hreyfingu, þegar hann stjórnar söngnum — í 11 löndum samtímis. Tveir banda- rískir einsöngvarar eiga sinn þátt í því að gæða samkomurnar lífi: Norma Zimmer og Jimmie McDonald. Einkum hefur McDonald mikil áhrif með hlýrri rödd sinni. Hann mun vera blökku- maður eða kynblendingur. Heita. má, að allir tæknigallar á sjónvarps- flutningi séu úr sögunni, þegar tvær fyrstu sam- komurnar eru um garð gengnar, og móttakan er eins og bezt verður á kosið í ölium viðtöku- löndunum. Fréttir taka að berast hvaðanæva um góða aðsókn. Ungt fólk kemur hópum saman. Æ fleiri óska eftir leiðsögn eftir samkomurnar. Þeir eru orðnir um fimm þúsund eftir þrjá fyrstu dagana. Dönsku áhugamennirnir, sem standa að sam- komunum í Kaupmannahöfn, verða fyrir von- brigðum. „Ef til vill er þetta erfiðasti staðurinn í Evrópu“, sagði fyrirliðinn, þegar hálf vika var iiðin. „Það er á vitorði margra, að kristilegt starf á erfitt uppdráttar í Kaupmannahöfn. Þetta kem- ur einnig fram í aðsókninni að samkomunum. Til þessa hafa þúsund manns komið í tveggja þús- und manna sal fyrstu fjórar samkomurnar. Að- sóknin í Noregi er undraverð." Þetta voru orð að sönnu. Þegar krossferðinni lauk, höfðu um 250 þúsund Norðmenn sótt hin- ar sérstæðu samkomur, af þeim 838 þúsundum, sem taldar voru á öllum samkomunum í Evrópu! Um 15.800 manns leituðu á fund leiðbeinenda víðs vegar um Evrópu. SjónMiarp Hvað um kostnaðinn? Ekki varð f haþálskri komizt hjá þeirri spurningu, þeg- hirhjn ar samkomuhöldin voru í undir- búningi. Um hlut Norðmanna er það að segja, að svo virtist í fyrstu sem halli yrði á ,,fjárlögunum“. En á því varð breyting, og þegar öll kurl komu til grafar, sýndu tölur, að gjafirnar nægðu fyrir kostnaðinum, og var þó afgangur. Norðmenn höfðu ákveðið, áður en krossferðin hófst, að veita Júgóslövum fjárhags- lega aðstoð. Hafa þeir sent a. m. k. 15 þúsund norskar krónur til trúaðra manna í borginni Za- greb í Júgóslavíu. 1 Zagreb tóku 300 evangeliskir menn höndum saman um að greiða fyrir sjónvarpi frá samkom- unum í Dortmund. Þarna var um að ræða „járn- tjaldsfólk“, og það hafði enga tryggingu fyrir því, að fyrirtækið mundi bera sig fjárhagslega. Auk þess vantaði það heppilegt húsnæði. Það mál leystist, þegar þeim tókst að fá inni í kjallara- hæð í kaþólskri kirkju! Þar rúmuðust 500 manns. Þegar fyrsta kvöldið var kjallarinn troðfullur. Nokkrir veggir í kjallaranum voru brotnir niður, svo að fleiri kæmust fyrir. En þetta var samt ófullnægjandi. Tækjum til hljóðvarps var komið fyrir í sjálfri kirkjunni. Nú gátu 1100 manns hlustað og séð. Og fólk streymdi til kaþólsku kirkjunnar til að hlýða á evangeliska prédikun. Nú hefur söfnuðurinn í Zagreb vaxið nær því um helming. Þeir þágu með þökkum hjálpina frá Noregi. Ekki er loku fyrir það skotið, að einhverjir hefðu óttazt, að óeirðaseggir mundu fara á stúf- ana í Dortmund, þegar samkomurnar hæfust. En Billy Graham fékk að starfa í friði. Þó segir frá lögfræðistúdent nokkrum, sem olli óspektum. 1 Dortmund stóð yfir prestafundur í kirkju einni, en Graham hafði verið boðið þangað til þess að tala og svara spurningum. Stúdentinn komst alla leið að ræðustólnum með mótmælaspjald sitt. öðrum megin á það var letrað: „Hræsnari", en hinum megin: „Er gott að búa á dýru hóteli?“ 2» KJAItMI

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.