Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.01.1972, Blaðsíða 24

Bjarmi - 01.01.1972, Blaðsíða 24
Ur öllum áttum berast oss fréttir um opnar dyr og gód starfsskilyrdi Vöxtur og verkaskipti Merk tímamck í Eþíópíu: Innlenda kirkjan tekur nú vi() stjórn starfsins Awasa, í desember 1971. Kæru kristniboðsvinir. Hinu árlega þingi kristniboð- anna á starfssvæði Norska lúth. kristniboðssambandsins í Eþí- ópíu er nýlokið hér í Awasa. Á annað hundrað kristniboðar frá Noregi, Finnlandi, Danmörku, Færeyjum og íslandi hittust hér til þess að ræða sameiginleg verkefni, leggja áætlanir um efl- ingu og útbreiðslu starfsins — og til þess að biðja herra upp- skerunnar, sem sendi þá til starfa, að leiða þá til þeirra verka, sem hann hefur áður fyr- irbúið í þessu landi, til þess að þeir legðu stund á þau. Mörg mál voru tekin fyrir á þinginu. Þó að hér í Awasa sé mikill gróður, stórt stöðuvatn, fjölbreytt fuglalíf og yndisleg fegurð, hvert sem litið er — hér er hvíldarstaður kristniboðanna, þegar þeir eru í leyfi, — þá komu menn ekki hingað að þessu sinni til þess að hvílast, heldur til þess að ráða ráðum sinum og vinna. Óneitanlega voru því ýmsir orðnir lúnir und- ir iokin. Samt héldum við heim glaðir og endurnýjaðir og með tilhlökkun. Drottinn var nálæg- ur og veitti okkur blessun og uppörvun. Alls síallar vöxlnr. Enn blasti við sjónum okkar víðáttumikill akur, sem er þeg- ar hvítur til uppskeru og bíður eftir verkamönnum. Úr öllum áttum berast fréttir um opnar dyr og góð starfsskilyrði. Heið- ingjarnir koma og segja: „Við viljum trúa á Krist“. Það var ákaflega fróðlegt að hlusta á frásagnir stöðvarstjóranna. Hér eru örfáar svipmyndir: „Kirkjusókn er betri nú en á liðnu ári.“ „Samkomusókn hef- ur enn vaxið. Fjölmargir láta í ljós, að þeir vilji taka trú á Krist. Einn mánuðinn voru þeir um fjögur hundruð. Verkefnin hrópa á starfsmenn!“ „Biblíu- skólinn er vel sóttur. Nemendur eru hvorki meira né minna en nálægt eitt hundrað talsins, karlar og konur, í tveim bekkj- um. Sumir nemendurnir eru ólæsir, og verður að taka tillit til þess í kennslunni. Alls eru 3900 í söfnuðinum.“ „Nú ríkir deyfð í mörgum gömlu, kristnu hópunum. Guð hefur þó ekki yfirgefið okkur, og dyr opnast á öðrum stöðum. 1 þorpi einu, þar sem stigamenn hafa búið um sig, hefur andi Guðs tekið að verka. Einn presturinn okk- ar, sem hefur löngum slegið slöku við starfið, hefur gengið í sjálfan sig. Hann ákallar nú Guð um miskunn og hjálp, til þess að hann megi verða til blessunar.“ „Við höfum ekki enn náð til endimarka starfs- svæðis okkar, þó að við höfum verið að verki á þriðja áratug. Margir nemendur biblíuskólans á stöðinni nota helgarnar til prédikunarferða og heimsækja þá fólk, sem þekkir ekki Krist.“ „Ég var á þessari stöð fyrir tólf árum. Þá komu tvö til þrjú börn í skólann okkar — stundum. Við urðum oft að fara út og leita að þeim á markaðstorginu. Nú er hópurinn oroinn stærri.“ „Unga fólkið sækir til okkar í hópum. Það er jafnan troðfullt hús. Barnaskólinn rúmar ekki fleiri nemendur. Herstöð er í grennd við okkur, og liðsforingj- arnir, sem búa þar með fjöl- skyldum sínum, senda börnin sín í skólann okkar fremur en í rík- isskólann. Konur þeirra koma á kvennafundina.“ „Nokkrir múhameðstrúarmenn hafa kom- ið til okkar og játað trú á Krist. Mér segir svo hugur, að fleiri komi á eftir.“ „Fyrir sjö til átta árum var erfitt að starfa á okk- ar stað. Nú er kirkjan full út úr dyrum, og meðal kirkjugesta er stór hópur æskufólks. Margt fólk kemur líka úr bænum í grenndinni, en annars staðar heldur ,,bæjarfólkið“ sig yfir- leitt fjarri kristniboðinu.“ Þess- ar leifturmyndir tala allar sínu máli. Einn norski kristniboðinn hafði gert tölulegt yfirlit um vöxt starfsins á starfssvæðum kristniboðsstöðvanna. Þar kom fram, að síðastliðin fimm ár hafði orðið mestur vöxtur í Konsó, eða rúmlega 42%. Eins og ykkur er kunnugt, starfa nú þrir prestar eða forstöðumenn í Konsó auk allra prédikaranna. Áðurnefndur kristniboði benti á, að greinilegt samhengi er á milli fjölgunar safnaðarfólks og tilkomu prestanna í söfnuðun- um. Þetta er athyglisvert og staðfestir það, sem lögð hefur verið áherzla á síðustu árin hér í Eþíópíu, að höfuðnauðsyn er að mennta unga Eþíópíumenn til starfa og forystu í hinum ungu söfnuðum. 24 B JARMI

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.