Bjarmi - 01.04.1995, Blaðsíða 18
VIÐTAL
og nú er rennandi vatn í skálanum árið um kring.
Sumarstarfið er gildur þáttur í starfi KFUM og
KFUK hér á Akureyri. Aðsóknin var afar góð á
liðnu sumri. Gert er ráð fyrir 24 börnum í senn en
rými er fyrir 28 börn. Við höfum góð tengsl við
stjórnir annarra sumarbúða KFUM og K og formenn-
irnir hittast einu sinni á ári.
Draumurinn rættist
Fréttamaður Bjarma gisti í húsakynnum KFUM og
KFUK í Sunnuhlíð um það leyti sem hann spjallaði
við Jón Oddgeir. Sunnuhlíð er reyndar stórt
verslunarhús í Glerárhverfi. Við höfum það fyrir satt
að hugmyndin um að félögin eignuðust samastað í
þessu húsi sé runnin undan rifjurn Jóns.
— Við störfuðum árum saman í kristniboðshúsinu
Zíon sem Kristniboðsfélag kvenna byggði af myndar-
skap og vígði 1933. En okkur hafði lengi langað til
að eignast eigin félagsmiðstöð.
Við héldum samkomur sameiginlega á sunnu-
dögum í Zíon. Þá gerist það að kona nokkur,
Kolbrún Hallgrímsdóttir, fer að sækja samkomurnar
og virðist kunna vel við sig. Þar kemur að hún fer að
hafa orð á því að hún vilji arfleiða KFUM og KFUK
að eigum sínum eftir sinn dag. Þegar Kolbrún lést
1977 féll það í minn hlut að ganga frá dánarbúinu.
Var þá komið á fót byggingarsjóð þar sem gjöf
hennar var stofninn.
Við störfuðum árum saman í kristniboðshúsinu
Zíon sem Kristniboðsfélag henna byggði af
myndarskap og vígði Í9J5. En okkurhafði
lengi langað til að eignast eigin félagsmiðstöð.
Brugðið á leik á
fundi með börnum.
Um þetta leyti var byrjað að byggja stóra húsið
við Sunnuhlíð og þá lagði ég til að við keyptum hlut
í húsinu. Við seldum hús, sem Kolbrún gaf okkur,
og höfðum nú handbært fé til að borga fimmtung af
verði húsnæðis í Sunnuhlíð. Við fengum lán úr sr.
Friðriks-sjóði fyrir sunnan og víðar og höfðum mörg
járn í eldinum til að afla okkur fjár. —
Jón lét m.a. gera veggplatta með bæninni Faðir
vor í bláum lit til ágóða fyrir byggingarsjóðinn. Þá
hefur hann til þessa haft veg og vanda af Loganum,
auglýsingablaði með viðtölum og fróðleik. Loginn
hefur komið út í 14 ár. Póstmenn og sjálfboðaliðar
dreifa blaðinu um bæinn og um Eyjafjörð. Hvert
tölublað hefur skilað félögunum drjúgum tekjum.
Jólakort voru seld o.s.frv.
Sigurbjörn Einarsson biskup vígði aðsetur félag-
anna í Sunnuhlíð við hátíðlega athöfn 17. niars
1985. Tíu ára afmælið hefur nýlega verið haldið
í sumarbúðum er matarlystin nær takmarkalaus
og brauðið hverfur fljótt af bökkunum. Sr. Sigfús
Ingvason forstöðumaður situr við borðsendann.
Björgvin Jörgensson stjórnaði drengjaflokkunum
um margra ára skeið.
hátíðlegt. Félagsheimilið er á annarri hæð hússins. í
því er 100 manna samkomusalur, setustofa, gesta-
herbergi, anddyri og snyrtingar. Rúmgott bílastæði
er við húsið.
Tryggöin og fórnfýsin
varöa mestu
KFUM og KFUK á Akureyri voru sameinuð 1993.
Formaður er Bjarni E. Guðleifsson en Jón Oddgeir
er varaformaður. í vetur hafa telpnadeild og drengja-
deild verið starfandi í Sunnuhlíð, einnig deild ungs
fólks og í febrúar var farið af stað með unglingadeild.
Þá eru almennar samkomur á vegum félaganna og
Kristniboðsfélags kvenna á hverju sunnudagskvöldi
á veturna.
— Eg á trú mína á Jesú Krist að þakka öllum
þessum félögum auk foreldra minna og svo afa og
ömmu sem voru einlægir kristniboðsvinir. Við
18