Bjarmi - 01.11.1995, Qupperneq 18
VIÐTAL
Gyða: - Við hefðum gjarnan viljað að starf
framkvæmdastjórans væri meira á þessu sviði en við
höfum oft kaffært hann með ýmsum „praktískum"
málum þannig að ekki hefur verið nægur tími til að
sinna sálgæslu fyrir félagsfólk, starfsmenn og sjálf-
boðaliða í starfinu.
- Er sjálfboðaliðahugsjónin á undanhaldi í
félagsstarfinu?
Gyða: - Þegar ég ber saman vetrarstarf og
sumarstarf félaganna og þá þróun sem hefur orðið
þar þá var það svo að þegar sumarstarfið byrjaði var
það unnið í sjálfboðavinnu. Síðan komust menn að
því að það væri ekki hægt að reka svona starf
almennilega nema með launuðu starfsfólki. Enda
hefur sumarstarfið blómstrað. í vetrarstarfinu byggj-
haldi að mínu mati en það þarf að vinna öðru vísi úr
henni.
- Fyrirfáeinum árum var rœtt töluvert um
sameiningu félaganna eða sameiginlega stjórn fyrir
þau. Ekkert varð úrþví en spurningin stendur eftir:
Myndi það ekki létta alla stjórnun og ákvarðanatöku
effélögin hefðu eina hœfilega fjölmenna yfirstjórn í
sameiginlegum málum?
Gyða: - Þegar þessi hugmynd kom upp á sínum
tíma að mynda sameiginlega stjóm fyrir bæði félögin
leist mér að mörgu leyti vel á hana. Síðar fékk ég
svo það hlutverk að kanna þetta mál nánar og átti sæti
í nefnd sem skoðaði kosti og galla þess að hafa eina
sameiginlega stjóm. Nú er ég búin að vera í stjórn
KFUK í eitt og hálft ár og hafi ég verið á þeirri
Það er ekki endilega nauðsynlegt að í stjórnumfélaganna sitji fleira fólk en í
/
ríkisstjórn Islands. Efafþessu yrði þarfað búa svo um hnútana að sérgreint
starffyrir stráka og stelpur, karla og konur, geti haldið sér.
um við nánast alfarið á sjálfboðaliðum. Við erum
aðeins með eina stöðu í æskulýðsstarfinu, þ.e. stöðu
æskulýðsfulltrúa, sem að vísu tveir deila núna. Þetta
hefur vakið mig til umhugsunar um það hvort
deildastarfið okkar líði fyrir það hvað við höfum fáa
starfsmenn í launuðum stöðum. Nútíma þjóðfélag er
nú einu sinni þannig að fólk hefur minni tíma til
sjálfboðaliðastarfa. Flestir vinna mikið og þurfa auk
þess að sinna skyldum gagnvart fjölskyldu og sínum
nánustu. Ég veit að við erum og viljum vera
sjálfboðaliðahreyfing, en finnst þó að við þurfum að
finna betra jafnvægi milli sjálfboðamennsku og
launaðra starfa. Við þyrftum að geta haft fleiri
launaða starfsmenn og síðan sjálfboðaliðana með
þeim og undir þeirra handleiðslu.
Olafur: - Ég held að aðalbreytingin í þessu efni sé
ekki sú að fólk sé óviljugra en áður eða hugsi meira
um að fá peninga fyrir verk sín. Þjóðfélagið hefur
breyst mikið og er t.d. miklu flóknara en það var
fyrir 25-30 árum. Fólk hefur mikið að gera og á
vissan hátt á sjálfboðaliðahugsjónin erfitt uppdráttar.
Þetta gildir alls staðar, í íþróttafélögum, kirkjunni og
víðar. Það virðist erfiðara fyrir fólk að binda sig
svona reglulega eins og gerist við þátttöku í
æskulýðsstarfinu, en auðveldara að fá fólk til að
taka þátt í átökum eða verkefnum sem taka afmark-
aðan tíma, t.d. í vinnuflokkum í sumarbúðum og
fleiru. Sjálfboðaliðahugsjónin er því ekki á undan-
skoðun þá að það þyrfti eina stjóm fyrir félögin þá
er ég sannfærð um það núna. Stjórnkerfið er alltof
þungt í vöfum. En þetta er mál sern þarf að undirbúa
mjög vel og félagsfólk þarf að vera tilbúið til þess að
gera sltka breytingu. Það er ekki endilega nauðsyn-
legt að sameina félögin enda er það tilfinningamál
fyrir mörgum en við þurfum einhvers konar
sameiginlega framkvæmda- eða rekstrarstjórn.
Ólafur: - Á aðalfundi KFUM fyrir nokkrum árum
var samþykkt tillaga um að vinna að þessu og það
hefur ekkert breytt því sem var samþykkt þá.
Sameiginleg stjórn myndi koma í veg fyrir ýmiss
konar tvíverknað og misskilning. Þetta myndi líka
spara mannskap. Það er ekki endilega nauðsynlegt
að í stjórnum félaganna sitji fleira fólk en í ríkis-
stjórn íslands. Ef af þessu yrði þarf að búa svo um
hnútana að sérgreint starf, fyrir stráka og stelpur,
karla og konur, geti haldið sér.
- Hvernig er háttað tengslum KFUM og KFUK í
Reykjavík við önnur KFUM og KFUK félög í
landinu? Hvert er hlutverk Landssambands
félaganna? Varþað „andvanafœtt"?
Ólafur: - Ég lít ekki svo á að Landssambandið
hafi verið andvana fætt. Því var fyrst og fremst ætlað
að vera samræmingar-, og samhæfingaraðili fyrir
KFUM og KFUK starfið í landinu og koma fram
fyrir hönd aðildarfélaganna bæði innanlands og
erlendis. Því var líka ætlað að sjá um vissa þætti
18