Bjarmi - 01.11.1997, Side 6
Torráðnustu lífsgáturnar eru fólgnar í vali á réttri
tegund afhárnæringu, að nota réttu hreinsiefnin á
heimilið og keyra rétta bílinn, svo eitthvað sé nefnt.
Sé lausnin á pessum gátumfundin líðurfólkinu í
auglýsingunum vel.
okkar ræðst að miklu leyti af þvi hver
sjálfsmynd okkar er og sjáfsmynd okkar
ræðst að meira eða minna leyti af því
hvað öðrum flnnst um okkur.
Vantar þig Ijósari lokk
og litfegri og kjötminni
skrokk?
Diabolus in musica (Lifið í litum)
Næstum allt fólk í auglýsingum er
ofboðslega sætt. Því líður vel og þarf
ekki að glíma við ilóknar aðstæður í líf-
inu. Torráðnustu lífsgátumar em fólgn-
ar í vali á réttri tegund af hámæringu,
að nota réttu hreinsiefnin á heimilið og
keyra rétta bílinn, svo eitthvað sé nefnt.
Sé lausnin á þessum gátum fundin líður
fólkinu í auglýsingunum vel. Hamingja
og heilbrigði er eitthvað sem hægt er að
kaupa úti í búð og ef þú hefur rétta
lúkkið lifirðu fyllra lífi og ert hafin(n)
upp úr meðalmennskunni. í heimi
auglýsinganna er enginn ljótleiki, ekkert
hatur, engin þjáning og enginn dauði
(nema þegar verið er mæla gegn reyk-
ingum, selja tiyggingar eða hvetja fólk
til að spenna beltin).
Margt bendir hinsvegar til að heimur
auglýsinganna, þar sem allt er svo ein-
falt og þar sem fólkið er svo fallegt og
vandamálin svo auðleysanleg, íýlli nú-
tímamanninn sektarkennd og geri hann
óánægðan með sjálfan sig og líf sitt.
Meðal annars sýndi sálfræðirannsókn
fram á það að 70% af konum skammast
sín fýrir sjálfar sig eftir að hafa skoðað
auglýsingamyndir af fyrirsætum og í
nýlegri bandariskri rannsókn sögðust
11% verðandi foreldra vilja láta eyða
ófæddu bami sínu ef hægt væri að sjá
fyrirfram hvort eittvað yrði að útliti þess
eða hvort það myndi eiga við offitu-
vandamál að stríða.
Fyrir nokkmm ámm birtist í banda-
rísku tímariti auglýsing sem skartaði
mynd af leikkonunni Michelle Pfeiffer.
Neðst á auglýsingunni var letrað skýmm
stöfum: „HÚN ER FULLKOMIN.“ Hvað
verið var að auglýsa fylgir ekki sögunni
en Michelle var undurfögur sem
endranær, enda myndu ílestir fallast á
að hún komist afar nálægt fullkomnun í
mannlegri fegurð. Það sem ekki kom
fram í auglýsingunni var að lagfæring á
myndinni af Michelle kostaði
auglýsingafyrirtækið mcirgra tíma vinnu
og auglýsendurna mikla peninga. Þeir
fáu vankantar sem fundust á andliti
Pfeiffer vom sniðnir af í tölvu. Það þurfti
að fylla varirinar ögn betur, þurrka út
hmkku hér, dýpka spékopp þar, hækka
kinnbeinin, stækka augasteinana, jafna
augabrúnirnar betur og svo framvegis
og framvegis. Eftir þessar lagfæringar
gátu auglýsendur sagt með góðu móti:
„Hún er fullkomin.”
Gæðastimpill skaparans
„Etum og drekkum því á morgun deyj-
um vér,“ er gamalt kjörorð sem á vel við
í dag, nema krafa tímans myndi bæta
við: „Etum (ekki of mikið) og drekkum
(sykurlausa drykki) því á morgun deyj-
um vér (og ekki viljum vér klæðast lík-
klæðum í yflrstærð, er það?).“ Án Guðs
hlýtur tilveran að vera einungis það sem
við getum séð og snert á. Þá er líka um
að gera að njóta stundarinnar, að láta
sér líða þokkalega vel í samfélagi mann-
anna. Lífið fuðrar upp eins og jókerblys
á gamlárskvöld og eins gott að upplifa
blossana meðan þeir vara. Við þráum
öll að vera elskuð og metin að verð-
leikum og þar leikur útlitið mikilvægt
hlutverk því það hefur veruleg áhrif á
álit annarra á okkur.
En það skiptir Guð Biblíunnar, hönnuð
og skapara alls hins sýnilega og ósýni-
lega, engu máli hvert okkar deyr með
sléttustu húðina, fæst aukakílóin,
stærstu vöðvana eða skilur eftir sig
flottustu fötin og hlutina þvi við erum
öll hvort eð er fallin frá honum (Róm.
3.23). Mennimir líta á útlitið en Drott-
inn á hjartað (1. Sam. 16.7).
Við erum fegurst í augum hans sem
þekkir allt það ljótasta í fari okkar. Guð
veit allt um okkur. Hann þekkir allar
hugsanir og verk sem við skömmumst
okkar fyrir og hann veit nákvæmlega um
hveija hrukku, öll ör og alla galla, bæði
á sálu okkar og líkama, en honum er
svo umhugað um að við vitum að hann
elski okkur eins og við erum að hann
fómaði sjálfum sér. Jesús Kristur, Guð
á krossinum, er staðfesting þess að
hann horfir í gegnum lúkkið. í Kristi
gerir hann okkur að nýrri sköpun sem
er hafin yfir kröfur tímans um rétt útlit.
Ekki svo að skilja að meik, varalitur og
Levi’s gallabuxur séu á bannlista hjá
Guði eða að bömum hans sé fyrirmun-
að að njóta veraldlegra gæða. Veraldleg
gæði eru hins vegar vandmeðfarnar
gjaflr sem eiga ekki að stjóma lífl okkar.
Eina gjöfln sem má og á að stjóma lífi
okkar er lífgjöfln í Jesú Kristi. Hún gefur
lífinu hér á jörð endanlegt og varanlegt
gildi. Kross Jesú er gæðastimpill skap-
arans. Á honum stendur: Fullkomin smíð
Guðs, sköpuð í Jesú Kristi til góðra
verka, til eilífðar.
^ Lúkk, kemur af enska orðinu „look" og merkir
útlit. Bjarmi biður hreintungusinnaða lesendur
sína velvirðingar á slettunni, sem er sett fram með
sama markmiði og ýmis slagorð auglýsinganna, að
vekja forvitni og fanga athygli.
En pað skiptir Guð Biblíunnar, hönnuð og skapara
alls hins sýnilega og ósýnilega, engu máli hvert okkar
deyr með sléttustu húðina, fæst aukakílóin, stærstu
vöðvana, eða skilur eftir sigflottustu fötin ...