Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1998, Blaðsíða 10

Bjarmi - 01.10.1998, Blaðsíða 10
Guðmundur Karl Brynjarsson Er sannleikurinn algjör eða afstæður? Kftir Norman Geisler IJóhannesarguðspjalli lýsir Kristur því yfir að hann sé „sannleikurinn" (Jóh. 14.6). Fátt hefur skaðað gildi þessarar yfirlýsingar meir en tíðarandi nútímans sem í raun hafnar þvi að til sé algjör sannleikur. Þessi lífssýn er afar útbreidd og á sér hljómgrunn um allan heim. „Fyrir þér er þetta kannski satt en fyrir mig ekki,“ eða: „Þetta kann einhverntíma að hafa verið satt en ekki lengur,“ eru setningar sem við höfum væntanlega öll heyrt einhverntíma. Áður en kristið fólk hyggst ræða kröfu Krists um að vera „sannleikurinn" er nauðsyn- legt að svara þessari spurningu: „Er sannleikurinn algjör eða afstæður?" Með öðrum orðum: „Er sannleikurinn óumbreytanlegur og óháður kringum- stæðum eða er sannleikur eitthvað sem hver og ein(n) verður að semja um við sjálfa(n) sig?“ Eins og áður sagði gerði Jesús tilkall til þess að vera „sannleikurinn“. Sann- leikurinn er lil en hvert er eðli hans? Hvað er sannleikur? Er sannleikurinn góður ásetningur? Sumt fólk heldur því fram að sannleik- urinn sé háður ákvörðun hvers og eins en ekki fólginn í einhverju algjöru. Aug- ljóslega er þó eitthvað bogið við þetta viðhorf. Ef ég áset mér að segja þér að beygja til hægri en segi þér að beygja til vinstri og þú villist þá hef ég ekki sagt þér sannleikann. Það er alveg sama hvað ég vildi vel. Með öðrum orðum er sannleikurinn því ekki hvað ég vildi sagt hafa en gerði ekki heldur einmitt hvað ég segi. Ef svo væri ekki hefði enginn maður haft nokkru sinni rangt fyrir sér. Afstæður sannleikur Nú á dögum álíta næstum allir að sann- leikurinn sé afstæður. Lítum á dæmi: Er sannleikurinn bara stundum sannur? Einu sinni álitu allir að jörðin væri flöt. Nú vitum við að hún er hnöttótt. í þessu sambandi má því segja að sannleikurinn hafi mótast með tím- anum, eða hvað? Hvort breyttist sann- leikurinn sjálfur eða trú fólks á því hvað er sannleikur? Sannarlega breyttist jörðin ekki úr pönnukökulaginu yfir í að vera hnöttótt. Það sem breyttist voru viðhorfin, ekki sjálf jörðin. Við skiptum út því sem við vitum nú að voru rangar upplýsingar fyrir réttar upplýsingar. Er sannleikurinn bara sums staðar sannur? Nei. Það sem er rétt á einum stað hlýtur einnig að gilda um þann næsta. Til dæmis er setningin: „Það er kalt á norðurpólnum," jafnsönn á heit- um sumardegi á Florida og í norðan- nepju á íslandi. „Það er kalt á norður- pólnum," er satt alls staðar. Eins er það sannleikur á norðurpólnum að það sé heitt á Florida. Ef eitthvað á að geta kallast sannleik- ur, þá er það sannleikur alls staðar, óháð tíma og rúmi. Sé eitthvað satt þá er það öllum satt. 7+3=10 er ekki að- eins sannleikur fyrir stærðfræðiséní heldur fyrir alla menn og það er ekki bara satt meðan verið er að reikna það heldur alltaf og alls staðar. Afstæðis- hyggjan er eins og gamalt epli. Hýðið gefur til kynna að það sé í lagi, en það er rotið að innan. Eitt sinn lenti ég í rökræðum við ung- an húmanista í Rice-háskólanum. Hann hafði lesið bók mína um Kristna trú- fræði (sem fáir nenna að gera). „Kristnir menn eru svo óskaplega þröngsýnir," sagði hann. „Geisler segir í bók sinni að kristindómurinn sé sannleikurinn og að öll trúarbrögð utan hans séu villa. Það kalla ég þröngsýni." Þegar það kom að mér að tala sagði ég: „Ég hef lesið bók dr. Kolendas, Trú- arbrögð án Guðs. Hann segir að húmanismi sé sannleikurinn og öll trú- arbrögð sem álykti annað fari vill vega. Þessir húmanistar eru nú aldeilis þröngsýnir. Bæði viðhorfin eru því jafn- þröngsýn. Þannig er sannleikurinn." Gleymum þó ekki að þó sannleikur- inn sé algildur þá þarf skilningur okkar á honum ekki endilega að vera það. Ég lenti eitt sinn í rökræðum við annan kristinn mann um það hvort kristnum mönnum bæri að styðja við starf Billy

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.