Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.10.1998, Blaðsíða 29

Bjarmi - 01.10.1998, Blaðsíða 29
Robert Duvall fer á kostum í hlutverki predikarans Sonnys. an hvítasunnupredikara, Bróður Blackwell (John Beasley), sem hafði orð- ið að láta af störfum vegna hjartakvilla og segir honum að hann hafi verið sendur af Guði til að taka upp þráðinn með honum. Honum tekst að sannfæra Blackwell og tekur til við að lagfæra kirkjuna hans sem hafði staðið ónotuð um nokkurt skeið. Hann fer síðan smátt og smátt að byggja upp nýjan söfnuð og notar til þess meðal annars svæðisút- varpið á staðnum. Allt gengur vel og framtíðin virðist björt á þessum nýja stað. En á meðan liggur móðir hans banaleguna án þess að hann geti heimsótt hana og Horace deyr af högginu sem Sonny hafði veitt honum. Sonny stendur því andspænis þeirri staðreynd að vera morðingi. Hann sér því loks þann kost vænstan að greina Bróður Blackwell frá því sem gerst hafði. Myndin í rauninni má segja að kvikmyndin The Apostle sé einkaframtak Roberts Duvall. Hann skrifaði handritið, leikstýrði, framleiddi og kostaði gerð hennar auk þess að leika aðalhlutverkið. Það mun hafa tekið Duvall um 15 ár að undirbúa myndina. Hann vildi sefja sig vel inn í viðfangsefnið en auk þess tók sinn tíma að reyna að fá eitthvert kvikmyndafyrir- tæki til að fjármagna myndina, en án árangurs. Duvall segir í viðtali við tíma- ritið The Journal of Religion and Film að hann hafi heillast af vakningapredik- urum í Suðurríkjum Bandaríkjanna fyr- ir rúmum 30 árum þegar hann heim- sótti litla hvítasunnukirkju í bænum Hughes í Arkansas. Hann segist hafa verið gripinn af þeim takti, hrynjandi og einlægu trú sem hann varð vitni að í söngvum og tónlist á tjaldsamkomum vakningapredikaranna og kveðst líta á þessar samkomur sem mikilvægan hluta af bandarískri menningu og þessa tegund predikunar sem sérstætt, amer- ískt listform. Óhætt er að halda því fram að kvik- mynd Duvalls sker sig úr flestum þeirra kvikmynda sem gerðar hafa verið um ameríska predikara, hræsni þeirra og spillingu. Það er t.d. mikill munur á The Apostle og myndum á borð við Leap of Faith með Steve Martin í aðalhlutverki og Elmer Gantry með Burt Lancaster. Duvall ber virðingu fyrir viðfangsefni sínu og meðhöndlar samfélög hvíta- sunnumanna í Suðurríkjunum á ein- lægan og yfirlætislausan hátt. Það fer heldur ekki á milli mála að Duvall hefur rannsakað viðfangsefni sitt vel. Það birt- ist meðal annars í þeirri mynd sem dregin er upp af hvítasunnupredikurum og söfnuðum Suðurríkjanna, enda var myndin kvikmynduð að hluta til á heimavelli, þ.e. í söfnuði hvítasunnu- manna sem leika mörg af smærri hlut- verkum í myndinni og eru í raun að leika sjálfa sig. En það birtist ekki síst í afburða leik Duvall's í hlutverki Sonny’s. Það má því segja að myndin standi og falli með honum. Sonny er enda aðalpersóna myndarinnar og aðrar persónur hennar þjóna fyrst og fremst því hlutverki að vera hluti af sögu hans. í því er veikleiki myndarinnar helst fólg- inn. Það hefði þurft að vinna meira með aðrar persónur sögunnar til mótvægis við persónu Sonnys og byggja þannig upp áhrifameiri spennu í kringum þennan litríka predikara sem virðist í senn góður og slæmur náungi. Margt í sögu hans og samskiptum við annað fólk er þar af leiðandi látið óskýrt og baksvið sumra atvika því óljóst. Ef til vill hefur Duvall ætlað áhorfandanum eftir að geta í eyðurnar og er allt gott um það að segja en afleiðingin er sú að margar af presónum myndarinnar verða hálf litlausar. Á hinn bóginn má segja Duvall til hróss að sagan er sögð án væmni og til- finningasemi og hann hvorki lítilsvirðir né upphefur Sonny. Hann leitast blátt

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.