Bjarmi - 01.10.1998, Page 12
í Skogarkirkju í Vatnaskógi.
Ljósm. Einar S. Arason.
Biblfuganga
/
Aþessu námskeiði munuð
þið læra um 77 atriði. Ein
líkamshreyfing fylgir hverju
atriði. Ég lofa ykkur að í
lok námskeiðsins munuð
þið kunna þetta allt saman án fyrir-
hafnar! Ein fyrirmæli enn: Ekki lesa
kennslubókina fyrir tímana!" Eitthvað á
þessa leið hófst kennslan í „Rölti um
ritninguna" á Biblíu- og kristniboðs-
námskeiðinu sem haldið var í sumar-
búðum KFUM í Vatnaskógi seinni hluta
ágústmánaðar. Fyrirmæli af þessu tagi
verka vel á nemendur sem velta spennt-
ir fyrir sér hvað í vændum sé á nýju
námskeiði og gefa góð fyrirheit um efni
væntanlegs námskeiðs. Þátttakendur
urðu ekki fyrir vonbrigðum.
Dýrleg dvöl í Vatnaskógi
Um 70 manns, börn og fullorðnir,
dvöldu í góðu yfirlæti á þessu fjölbreytta
námskeiði í yndislegu veðri, sem var
eins og það gerist best í útlöndum! Auk
góðrar kennslu og fræðandi kennslu-
greina áttu gestirnir í Vatnaskógi marg-
ar góðar samverustundir þar sem allt
kynslóðabil var á bak og burt. Aðrir
kennarar komu og buðu upp á fræðslu
um Gyðinga og ísrael, siðfræði fiskveiða,
stjórnmál, kristniboð í heimi þar sem
meiri hluti mannkyns aðhyllist önnur
trúarbrögð, líknardráp, fóstureyðingar
og fleira.
Veltibíll frá Sjóvá-Almennum kom á
staðinn og fólk gat fengið að fara í bílf
veltu. Fæstum þótti sú reynslan eftir-
sóknarverð. Einnig reyndu menn með
sér í ökuleikni á reiðhjólum og þreyttu
kapp saman á Furðuleikum Vatnaskóg-
ar með því meðal annars að þeyta virðu-
legu kvenveski, sem hafði gegnt merki-
legu hlutverki í samfélaginu, eins langt
og þeir gátu og sparka af sér stígvélum
sem mest þeir máttu. Ekki spillti dýrleg
náttúran fyrir dvölinni og margir fóru í
gönguferðir út í skóg eða í ferð út á Eyr-
arvatn. Síðasta kvöldið var tilkomumikil