Bjarmi - 01.10.1998, Qupperneq 17
Ársæll Aðalbergsson, formaður Skógarmanna KFUIVI og verslunarstjóri í Toppskónum.
sem aðeins stærri sveitarfélög geta stát-
að af, hefur risið og svo mætti halda
áfram að telja.
Já, starfið í Vatnaskógi hefur verið
ævintýri og það stendur enn.“
Sæludagar
- 75 ára afmæli
Segðu okkur svolítiðfrá Sæludögunum
eða eru það kannski „Sæladagar“?
„Sæludagar um verslunarmannahelg-
ina eru orðinn fastur liður í starfsem-
inni. í sumar voru þeir haldnir í átt-
unda skipti.
Á Sæludögum er margt í boði fyrir
alla fjölskylduna. Kvöldvökur, bæna-
stundir, fræðslustundir um trú, vísindi,
hjálparstarf og fleira. Boðið er upp á
sérstaka barnadagskrá, frjálsíþrótta-
mót, fótbolta, sérstaka unglingadag-
skrá, Vatnafjör á Eyrarvatni og margt,
margt fleira. Sífellt er verið að reyna
eitthvað nýtt til þess að gera góða hátíð
enn betri. Á staðnum er jafnframt kaffi-
hús þar sem fólk getur komið saman og
rætt málin við arineld í notalegu um-
hverfi og jafnvel hlustað á ljúfa tóna í
leiðinni."
Voru ekki einhverjir tónleikar á laugar-
dagskvöldinu? Segðu okkur aðeinsfrá
þeim.
„Það er rétt, trúbadorinn KK eða Krist-
ján Kristjánsson tók lagið og skemmti við
mjög góðar undirtektir. Þá tók Kanga-
kvartettinn einnig nokkur lög og stóð
sig frábærlega. Einnig spilaði hljóm-
sveit hússins nokkur lög en hún er
skipuð nokkrum hressum Skógarmönn-
um. Það var mál manna að þessir tón-
leikar hefðu heppnast mjög vel.“
Þann 3. ágúst s.l. voru 75 árJrá því
Jyrstu drengirnir lögðu aj stað í Vatna-
slcóg. Var sérstök dagskrá aj því tilejni?
„Á sunnudeginum var sérstök afmæl-
ishátíð. Hófst hún með hátíðarguðs-
þjónustu sem sr. Sigurður Pálsson,
prestur í Hallgrímskirkju í Reykjavík og
fv. formaður KFUM í Reykjavík, sá um.
Fjölmenni var við guðsþjónustuna og
voru m.a. Björn Bjarnason mennta-
málaráðherra og kona hans frú Rut Ing-
ólfsdóttir viðstödd og heiðruðu okkur
þannig með nærveru sinni.
Saga Vatnaskógar er saga frumkvöðla sem voru
ákveðnir íað láta drauminn um sumarstarf rætast.
Með áhuga, útsjónarsemi, dugnaði og ekki síst vegna
mikilla fyrirbæna um handleiðslu og Guðs hjálp og
með mikilli samstöðu tókst ætlunarverkið.
Líklega hafa pessir brautryðjendur ekki látið sér detta
íhug að pessi draumur myndi rætast svona langt
umfram pað sem nokkur hafði getað leitt hugann að.