Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.05.2000, Side 14

Bjarmi - 01.05.2000, Side 14
Föstudagur um kl. 9 Þegar komið er til Golgata er þvertréð lagt á jöróina ogjesús látinn leggjast með axlirnar á grófann viðardrumbinn. Hermaður þreifar eftir réttum stað á hönd Jesú og neglir því næst þungan járnnagla í gegnum höndina og á kaf í viðinn. Fornleifræóingar hafa fundið nagla sem notaðir voru til krossfestingar og eru þeir um 15 sm langir. Hermaður- inn neglir nú í gegnum hina höndina en aðgætir að strekkja ekki um of á hönd- unum, heldur leyfir ákveðinn sveigjan- leika. Sérfræðingum ber ekki saman um hvar neglt var í hendur Jesú. Franski skuró- læknirinn Pierre Barbet hefur rannsakað krossfestingar og er virtur á því sviði. Hann telur að neglt hafi verið á milli tveggja beina í úlnlió, því ef neglt hefói verið í lófann hefði naglinn rifnað út úr lófanum vegna líkamsþungans. Þessu er Frederick T. Zugibe, prófessor í meina- fræói við Columbia University, ósam- mála. Hann fullyrðir að neglt hafi verið í ákveðinn stað lófans, þar sé besti staður- inn og að hann haldi vel líkamsþungan- um. Föstudagur kl. 9-1 5 Þvertréó er nú híft upp og fest efst á staurinn. Vinstri fæti er ýtt aftur aó þeim hægri og með báða fætur rétta fram og tær niður er nagli rekinn í gegnum rist- arnar og gætt að því að hné séu ekki læst. Jesús hangir nú á krossinum og fljótlega fer líkaminn að síga. Það verður til þess að aukinn þungi færist á sárin í höndunum sem leiðir svo til óbærilegs sársauka fram í fingurgóma og upp eftir 14

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.