Bjarmi

Årgang

Bjarmi - 01.05.2000, Side 25

Bjarmi - 01.05.2000, Side 25
Flesta daga gengur hann langar leiðir til að vitja um biblíuleshópana og 50 km er ekki mikið í hans augum. Þú sagðir að þið bœðuð fyrir þörfum fólks - hverjar eru þœr helstar? - Vandamál fólks eru mörg. Sumir eru fátækir, aðrir veikir, enn aðrir haldnir ill- um öndum. Ef svo er rekum við þá út, biðjum fyrir fólkinu og skipum öndunum að hafa sig á brott. Hverniggreinið þið að fólk sé haldið illum önd- um en eigi ekki við sálræna eða geðrœna erfið- leika að glíma? - Sumir hafa þá gjöf að geta greint þetta. Vió sjáum oft að þessu fólki fer að líða illa þegar við syngum lofsöngva um Jesú og sumir fara að tala eða muldra án þess að hafa stjórn á því. Fólkinu veróur illt um allan líkaman vegna alls kyns verkja sem engin skýring er á. Þá tökum við þessa einstaklinga til hlióar, biðjum fyrir þeim og skipum öndunum á brott. Þetta er ósköp hversdagslegt fyrir okkur og engin læti í kringum það. Jesús er sig- urvegarinn, hann hefur keypt þetta fólk með blóði sínu og margir hafa leyst und- an illu valdi og læknast af sjúkdómum. Hvaða ástceðurgcetu verið fýrir þessu? - Þær geta verió margs konar. Hjá mörg- um tengist þetta forfeðradýrkun sem fólk hefur tekið þátt í eða að það hefur leitað til töfralækna. Sumir virðast jafn- vel vera undir einhverri bölvun, annað hvort vegna einhvers sem forfeðurnir hafa gert eða vegna þess að bölvun hef- ur verió kastað á þá. Hjá öðrum viróist engin augljós ástæða. Ég tek fram að þetta er þá fólk sem ekki er kristió eða fólk sem hefur snúið baki við trúnni. En vald hins illa þarf aó brjóta og það get- um við aðeins gert í nafni Jesú. Ljóst er að trúin er líf og barátta. Er einhver sérstök minningsem þú átt íþvísambandi? - Já, ég hef lent í ýmsu og margir hafa valið aó vera óvinir mínir, líklegast vegna þess að Guð hefur blessað þetta starf og óvinurinn vill stöóva það. I fyrra fyrir tæpu ári var eitrað fyrir mér. Ég veit ekki hverjir það voru en grunar að einhverjir af leiðtogum kirkjunnar hafi staðið að baki. Ég var meðvitundarlaus í 12 daga. En síðustu nóttina dreymdi mig draum. Ég var staddur á stóru, opnu svæði eins og íþróttavelli með fjölda fólks af alls kyns kynkvíslum og allir voru veikir. Þeir virtust bíða dauðans. Þá kom ég auga á engil sem kallaði á mig og spurði hvers vegna ég væri hér. Ég svaraði því til að þaó hlytu að vera einhver mistök. Þá sagði hann mér að fara út. Ég sagóist ekki geta opnað hliðin en hann svaraói þá að hann skyldi hjálpa mér og fórum við saman til þess. Stuttu síðar vaknaði ég alheill. Læknirinn var hissa og hélt ásamt konunni minni að ég væri orðinn skrýtinn þegar ég sagðist ætla að skreppa út í bæ. En þetta er eitt af mörg- um dæmum um mátt Guðs í lífi þeirra sem fylgja Jesú og þrá að vera hans. Nú þekkir þú talsvert til ÍEvrópu, hvað sérð þú sem helstan mun á Evrópubúum og Afríkubú- um? - I Evrópu eru ekki eins mörg vandamál og hér og fólk ekki í eins mikilli þörf fyrir hjálp. Fólki finnst það geta séð um sig sjálft og hefur ekki þörf fyrir fagnaðarer- indió. Margir hafa ekki einu sinni þörf fyrir að biðja. Þar vantar víða kjölfestu og margir ánetjast eiturlyfjum, mikið ^r um skilnaði og margir láta sig Guð engu varða. Hér á Guð enn rými í hjörtum fólks og margir þrá að þekkja Guð. Það þráir aó Guó leiði þaó og hjálpi því í öll- um kringumstæðum. Enn er þorstinn eftir Guði mikill. Fólk tekur við orði Guðs. Ég held líka að auóveldara sér fýr- ir fátækt fólk en ríkt að leita eftir og þiggja hjálp Guðs. En Evrópubúar eiga enn von og tækifæri til iðrunnar. Ég hef sjálfur verið vitni að því að margir hafi snúið sér til Jesú í Evrópu. Hvað varóar kirkjuna þá er hún víóast hvar betur sett í Afríku en í Evrópu. And- legt ástand er mun betra og meira líf eins og það kemur mér fyrir sjónir. I Evr- ópu er mikil þörf fýrir boóun, að ná út til fólks meó fagnaðarerindið, svo það skilji og taki vió því sem boðskap fýrir sjálft sig. Margar kirkjur hér í Afríku eru opnar fyrir áherslu á náðargjafirnar og þátt- töku leikmanna. Fólk er opið fýrir krafti Heilags anda. An hans getum við ekki staðist í þeirri baráttu sem við eigum í. Að sjálfsögðu er þörf fýrir heilbrigða og jákvæða leiðsögn á þessu sviði. Hvert er helsta vandamál kirknanna ÍAfríku? - Ég sé einkum tvennt. í fýrsta lagi eru leiótogar kirkjunnar margir mjög upp- teknir af fjármunum. Þeir vilja frekar fá meiri peninga en fleira fólk. Þannig missa þeir marks og sjónar á því sem er mikilvægast. I öðru lagi er þátttaka þeirra í stjórnmálum. Allir þurfa að tjá sig um allt. Andlegt starf kirkjunnar lendir á hakanum og hreint og beint gleymist. Margir leiótogar stóru kirkn- anna eru fastir í forminu og hefðunum. Þeir leggjast gegn vakningar- og endur- nýjunarstraumum sem gætu orðið safn- aðarlífinu til bjargar. Sumirvilja umfram allt halda í völdin. Þess vegna brjóta hópar sig út úr og stofna sjálfstæða söfnuði. Hér í Pókot finnst mér frábært að vera. Kirkjan er opin og fólk er einlægt í trúnni. Mér finnst hún vera hrein og ómenguð þó svo ég viti að þið eigið við ykkar vandamál að stríða. Eldurjesú býr í hjörtum fólksins. I guðsþjónustunum er sungið af öllum krafti og allur líkaminn er með. Maöur kemst ekki hjá því að hrífast með. Ebenezer á konu og þrjú börn. Hann er mikió að heiman, nær alla daga. Flesta daga gengur hann langar leiðir til aó vitja um biblíuleshópana og 50 km er ekki mikið í hans augum. Þú hlýtur að slíta mörgum skóm á ári? - og ég kíki á lúna, vel pússaða fótlagaskóna. Hann brosir út að eyrum og gleðin og friðurinn streymir frá honum. Hann er auðmjúkur maður og sjálfsvorkunn er ekki að finna í fari hans þó svo að hann hafi engar fastar tekjur. Það er án efa oft þröngt í búi hjá honum. Þar með sláum við botn í spjallið. Eb- eneser er lifandi vottur og baráttumað- ur. Hann minnir okkur enn og aftur á að við getum ekki sett traust okkar á neitt annað en Jesú. Hann er frelsarinn, vinur- inn í daglegu lífi og Drottinn okkar í stóru og smáu. < 25

x

Bjarmi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.