Bjarmi - 01.06.2001, Qupperneq 9
ráðum og hellti mér út í tónlistina íTón-
listarskóla Akureyrar og kláraði 7. stig í
píanóleik vorið sem ég útskrifaóist úr
Menntaskólanum á Akureyri. Einnig var
ég þá kominn með nokkur stig á saxó-
fón.“
Oskar spilaði í stórsveit Akureyrar og
stjórnaði kór Menntaskólans næstu árin.
Samhliða tónlistarnáminu kenndi hann
vió Tónlistarskóla Eyjafjarðar og tók
virkan þátt í Hjálpræðishernum. Um
þennan tíma segir Óskar: „Þetta voru
strembin en skemmtileg ár og ég sakna
þeirra að mörgu leyti. I tónlistinni fann
ég eitthvað sem ég hafði gaman af að
gera og átti auðvelt með.“
Óskar vildi nú víkka sjóndeildarhring-
inn. Árið 1991 fluttist hann ásamt
Bente konu sinni suóur til Reykjavíkur.
Hann hóf nám í Tónlistarskóla FIH og
kynntist þar Sigurði Flosasyni saxófón-
leikara. „Sigurður hvatti mig til dáóa í
tónlistarnáminu og tók mig undir sinn
verndarvæng. Hann ráðlagði mér að
fara í Tónlistarskólann í Reykjavík sem
ég og gerði. Þar lauk ég námi á saxófón
og kláraði blásarakennaradeildina 1995
með flautu og klarinett sem aukahljóð-
færi. Saxófóntímarnir hjá Sigurði leidd-
ust oft yfir í „djassdjamm" á píanóinu.
Þá opnuðust oft dyrnar á stofunni og
augnaráóið í gættinni gaf til kynna að
svona ætti nú varla við í Tónlistarskóla
Reykjavíkur!"
Fyrstu árin eftir að þau hjónin fluttust
suóurvoru þau bæði í námi en Óskarvar
svo heppinn að fá starf í Borgarleikhús-
inu við að spila „dinner“ í hléi og í gegn-
um það náði hann ýmsum samböndum.
Eftir að Óskar lauk námi í Tónlistar-
skólanum í Reykjavík varð hlé á náminu
en árið 1997 fór hann með fjölskyldunni
til Bandaríkjanna. Þar tók við tveggja
ára meistaranám í tónlist við University
of Miami. Margir þekktir tónlistarmenn
heimsóttu skólann meðan Óskar var þar
við nám. Þetta er með vinsælustu djass-
skólum Bandaríkjanna og þekkt fólk hef-
ur útskrifast þaðan. I náminu fléttuðust
saman útsetningarfræði, tónsmíðar og
hljóðversvinna. Námsáfangarnir voru
fjölbreyttir: kvikmyndatónlist, auglýs-
ingatónlist, djasstónsmíðar, klassískar
tónsmíðar, útsetningar fyrir stórsveit,
sinfóníuhljómsveit og kammersveit,
raddútsetningar, tæknivinna í hljóðveri,
tölvutónsmíðar og fleira. Þaó var því
nóg að gera og aldrei mátti slaka á. En
fjölskyldan bjó vió góðar aðstæóur og
naut veóurblíðunnar á Miami. Árið
1999 lauk Óskar náminu og fjölskyldan
flutti heim aftur. Hefur hann lagt
frekara nám á hilluna í bili a.m.k.
Eftir að hafa heyrt um uppvöxt og
námsferil Óskars víkur samtalinu að nú-
verandi viðfangsefnum Óskars. „Árið
1992 fékk Hafliði Kristinsson, forstöðu-
maður Hvítasunnukirkjunnar í Reykjavík,
mig í hlutastarf við píanóundirleik á
samkomum og til að æfa upp kór.
Smám saman jókst þetta í umsvifum og
nú er ég nánast í fullu starfi hjá söfnuð-
inum sem tónlistarstjóri. Frá 1995 hef
ég líka mikið unnið að geislaplötum við
útsetningar, undirleik og upptökustjórn.
Sú vinna jókst mikið eftir aó ég kom
... en fyrsta stóra verkefnið eftir að ég kom
heim var að útsetja og stjórna tónlistinni í
söngleiknum „Kysstu mig, Katau. Þar reyndi
mjög á það sem ég hafði lcertytra. Síðan sá
ég um gospeltónleikana á Kristnitökuhátíðinni
og stofnaði Gospelkór Reykjavíkur í því
sambandi.
9