Bjarmi

Volume

Bjarmi - 01.11.2001, Page 4

Bjarmi - 01.11.2001, Page 4
Vakningin er verk Guðs Benedikt Arnkelsson Kristnir menn fagna hverjum nýjum lærisveini, sem játar nafn frelsarans Jesú Krists, og bjóóa hann velkominn í samfélagió eóa söfnuðinn. En oft langar þá til að nýliðarnir yrðu miklu fleiri en raunin er. Sá sem hér heldur á penna minnist þess að um miója síðustu öld töluóu trúaóir vinir hans oft um vakn- ingu. Þeir þráðu endurnýjunartíma. Og þá voru til - og eru kannski enn - bókmerki sem á var letrað eitthvaó á þessa leió: „Drottinn, gef oss vakningu og lát hana byrja i' mínu hjarta." Þessi bæn ætti sífellt að vera lifandi í hjörtum trúaós fólks. Reyndar hefur einhver sagt að orðió vakning sé að missa merkingu sína af því að það sé notaó í svo margvíslegu og misjöfnu samhengi. Kristileg trúarvakn- ing varðar fyrst og fremst nýja afstöóu syndugra manna til Drottins og hjálp- ræóis hans. I Efesusbréfinu segir svo: „Guó er auðugur aó miskunn. Af mikilli elsku sinni, sem hann gaf oss, hefur hann end- urlífgað oss með Kristi, þegar vér vorum dauöir vegna misjörða vorra. Af náð eruó þér hólpnir orðnir“ (Efes. 2,4-5). Efesus- menn höfðu lifað í misgjörðum og synd- um. Þeir geróu sér takmarkaða grein fyr- ir því, þangaó til vottar Krist komu og leiddu þeim fýrir sjónir hversu alvarlegt það væri að brjóta heilög boðoró Guðs. Þá var sem þeir vöknuðu af svefni, af andlegum dauða. Þeir sáu að þeir voru sekir fyrir Guði. En jafnframt var þeim flutt fagnaóarerindið um Jesú Krist og fórn hans á krossinum, mönnum til hjálpræðis. Og þeir sem lögóu við hlustir og tóku trú hlutu frið við Guð og góöa samvisku. Þeir höfðu verió lífgaðir, öðluðust lífið í Guði og fýrirheit um eilífa sáluhjálp. Þetta hafði einnig gerst í Jerúsalem á hvítasunnudag. Þegar Pétur postuli flutti prédikun sína fannst áheyrendum sem stungió væri í hjörtu þeirra og þeir spurðu hvaó þeir ættu aó gera. Pétur hvatti þá til aó gjöra iðrun og láta skírast til fýrirgefningar syndanna enda myndu þeir öðlast heilagan anda. Andinn veitist öllum þeim sem taka á móti Jesú Kristí svo að þeirgeti lifaó honum. Þrjú þúsund manns bættust í hóp lærisveinanna á þessum degi (Post. 2). Ur Gamla testamentinu má benda á Davíó konung. Hann brýtur af sér gagn- vart Batsebu og Uría og gerist sekur um hórdóm og mannvíg. En hann vaknar og iðrast. Misgjörðir hans veróa honum óbærileg byrði. „Synd mín stendur mér stöóugt fyrir hugskotssjónum. Gegn þér einum hefi ég syndgað." Og hann veit að Guó er sá sem fyrirgefur og hreinsar. „Afmá allar misgjöróir mínar. Varpa mér ekkí burt frá augliti þínu, veit mér aftur fögnuð þíns hjálpræðis." Hann finnur frið því aó hann segir: „Sundurmarió og sundurkramið hjarta munt þú, ó, Guð, eigi fyrirlíta.“ Og hann þráir að kunn- gjöra lof Guðs (2. Sam. 11-12; Sálm. 51). Vakning leiðir ekki alltaf til afturhvarfs og trúar. En þaó er markmið hennar. Og sumir kalla þaó eitt vakningu þegar menn sjá syndir sínar og leita hælis hjá Jesú Kristi sértil sáluhjálpar, láta frelsast. Einkum er oróið notað þegar margir í senn fara að leita frelsarans og gefast honum. Það er ekki á mannlegu valdi að koma af stað sannri, kristilegri vakningu, hvorki meó mælskulist, söng, sýningum eóa neinu skipulagi. Samhengið milli Guðs Samhengiö milli Guös orös sem sáö er, sáömcmnsins, bænar, áhrifa heilags anda og ástands hjartnanna sem sáökorniö fellur í - þetta er djúpur leyndardómur sem okkur mönnum er hulinn (sbr. Matt. 13). 4

x

Bjarmi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.