Bjarmi - 01.11.2001, Blaðsíða 7
Norski kristniboóinn Marie Monsen kom mjög vió sögu í vakningum sem uróu í
Kína snemma á öidinni sem leió. Hún varói löngum tíma til bæna.
anna, sem sóttu námskeióió, og þær
stöllurnar voru sannfæróar um að þar
hefói bænin haft sitt að segja.
Bænin greiddi ekki aðeins fyrir vakning-
unni heldur hjálpaði líka trúaða fólkinu
til að vera reióubúið þegar hún kom. Þá
var biðtími bænarinnar liðinn. Bæði
boðbera og samverkamenn þarf Guð að
undirbúa, losa þá viö stolt og glæða
traustið á Jesú sjálfum. Hann þarf að
gera hópinn, samfélagið, bræður og syst-
ur nær og Ijær, einhuga í bæninni.
Marie Monsen þótti ekki tilkomumikill
ræðumaður. Kínverskir prédikarar sögóu
iðulega við hana: Við skiljum þetta ekki.
Þú ert enginn ræðuskörungur. Við getum
allir talað betur en þú. Og samt gerist allt
þetta!
Billy Graham og hans menn undirbúa
samkomuherferðir sínar meó bæn og
meó því að fá fólk til aó biója. Hann er
sjálfur biðjandi maður, lifir og hrærist í
bæn til Guðs. Á sjötta áratugnum var
ráðgert að hann og samverkamenn hans
færu í krossferð til Lundúnaborgar.
Trúbræður og systur í Englandi ákváðu
að styðja hann. Þau létu hendur standa
fram úr ermum og hófu að undirbúa
samkomurnar. Þau hvöttu m.a. fólk til
aó biðja, biðja án afláts. Mánuói áður en
samkomurnar áttu að byrja voru þrjú
þúsund bænahópar farnir að koma sam-
an í Englandi. Graham átti marga vini í
útvarps- og sjónvarpsstöðvum í heima-
landi sínu og hann baó þá að hvetja fólk
til bæna. I Kóreu voru mörg hundruð
bænahópar sem minntust Grahams og
áforma hans í Englandi.
Fyrsta mars 1954 hófust samkomurnar
í Lundúnum og má segja að andi Guðs
hafi verið nálægur allt frá fyrstu stund.
Fjöldi fólks gaf sig Guói á vald.
- Biðji menn um vakningu þurfa þeir
að vera trúir í því starfi sem fyrir er og
mega ekki líta þaó smáum augum. Þó að
kristniboðarnir á heióingjaakrinum sjái
að í söfnuóunum séu sumir trúaðir ein-
ungis að nafninu til, þá vita þeir að þar er
líka fólk sem á lifandi samfélag við Drott-
in. Þess vegna leggja þeir ekki árar í bát
heldur halda áfram aó boða orðið.
Sömu lögmál gilda í starfi hér heima.
Trúfesti er þörf. Gildi kristilegs starfs fer
ekki eftir fjölda eóa ytri ásýnd.
Þaö er ekki góðs viti þegar menn flakka
á milli samfélaga og safnaóa eftir því
hvað þeir halda að þar sé á boðstólum.
Kristnir menn eiga að finna sér andlegt
heimili þar sem þeir eru fastir heimilis-
menn og bæði njóta og leggja eitthvað af
mörkum. Fæðan, sem þar er fram borin,
verður að sjálfsögðu aó vera bráuð en
ekki steinar. Trúaðir menn biðja því fyrir
andlegu heimili sínu. Þeir eru heima og
þeir bjóða þeim sem láta frelsast að
verða líka heimilismenn.
- Eigi vakning aó veróa varanleg þarf
hún aó vera róttæk en ekki aðeins eft-
irsókn eftir Ijúfum kenndum. Hún þarf
að snerta samviskuna og viljann. Þá þarf
boðskapurinn um synd og náð, um
lögmál og fagnaðarerindi, aó hljóma svo
aó hver sem hlustar geri sér grein fyrir al-
varlegri stöðu sinni fyrir Guói en heyri
jafnframt hvatninguna um að snúa sértil
Drottins og taka í trú á móti fýrirgefn-
ingu syndanna sem veitist vegna fórnar
Jesú á krossinum.
- Þeir sem þrá vakningu ættu að biója
um visku og þjónslund. Þeir þurfa að
vera fúsir til aó gefa af tíma sínum. Oft er
erfitt að vitna um trúna í orðum. Þá get-
ur verið auðveldara að reyna að fá fólk til
aó koma þangað sem boóskapurinn
hljómar. Trúin kemur af boðuninni. Oft
er mikil nauðsyn á sálgæslu á vakn-
ingatímum og þá er þörf mikillar visku.
Við framköllum ekki raunverulega
vakningu. Guð vekur menn fýrir anda
sinn og hann notar orð Biblíunnar. Ver-
um þess fullviss aó það er vilji Guðs að
fólk vakni til iðrunar og trúar svo að það
taki að fylgjajesú. Hann vill aó lærisvein-
ar sínir vinni aó því að svo verði með því
að sá orðinu og biója án afláts.
Verum trú, hvert á sínum stað, og
látum það vera einlæga bæn okkar að
hann úthelli anda sínum á meðal okkar.
Heimildir:
Biblían.
Vekkelsen ble en Andens aksjon, eftir Marie
Monsen. Lunde Forlag, Osló, 1972.
BillyCraham, eftirjohn Pollock. Lutherstiftel-
sen, Osló, 1966.
Netið.
Benedikt Arnkelsson er guðfrceðingur og
starfar hjá Kristniboðssambandinu.
7