Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.2001, Blaðsíða 18

Bjarmi - 01.11.2001, Blaðsíða 18
7 vikna gömul stúlka sem bjargaó var á barnaheimili á Indlandi. Drengur á El Shaddai barna- heimilinu. Matartími á heimili Litlu Ijósanna. Drengir á El Shaddai barnaheimilinu aó borða. stelpa frá heimili í Kambódíu sem fannst í körfu við árbakka. Það var auðsjáan- lega búið að bera hana út, hún var köll- uð Móse þar sem þetta var svo líkt sög- unni úr 2. Mósebók. Þá er eftirminnileg saga fimm munaðarlausra bræðra sem voru á götunni, en komust inn á Heimili litlu Ijósanna. Frá Uganda fáum við oft átakanlegar skýrslur. Þetta eru oft svo ótrúlegar að- stæóur sem börnin búa vió og maóur getur stundum ekki annað en grátið þeg- ar maóur les þetta. Fátæktin er ólýsan- leg, dauóinn er þessum börnum svo ná- lægur, sum búin að missa báða foreld- rana og búa hjá ömmu sem er orðin það hrum að hún getur ekki séð almennilega fyrir þeim, en er þó meó stóran barna- hóp á sínu framfæri. Aðstæóurnar er ólýsanlegar og ótrúlegt aó þaó sé hægt að komast af vió svo bágar aðstæóur þar sem er ekkert velferðarkerfi. Þannig að umbreytingin verður mikil þegar þessi börn fá stuóning. Að fá aó borða og geta gengið í skóla breytir mjög miklu. Ég man eftir dreng sem kom inn á El Shaddai barnaheimilió og í skýrslunni stóð að hann væri vanur að boróa mold og málningu af veggjum, slíkt var hungrið. Við slíkar aóstæóur er algjör umbreyting að fá umhyggju, fæði, klæði, menntun og húsaskjól. Bera börnin þess ekki merki að hafa þurft að búa við svona erfiðar aðstceður? — Þau hafa kannski tekíó sinn þroska aó- eins seinna út og veróa. smávaxnari. Einnig getur mjög alvarlegur næringar- skortur valdið blindu, en ég veit ekki til aó neitt barnanna sé alvarlega skaðaó af næringarskorti. Þaó sem maður veitir fyrst og fremst athygli er hvað þetta eru almennt kurteis og elskuleg börn. Þau börn sem hafa þurft að horfa upp á foreldra sína deyja eóa hafa lent í öór- um alvarlegum hremmingum bera oft innri sár sem þarfnast lækningar og er umhyggja og öryggi ásamt því að kynnast Jesú Kristi besta lækningin fýrir þau. Hver er grundvöllur þess að hcegt sé að halda úti öflugu hjálparstarfi? — Guó er grundvöllurinn sem við byggj- um á í þessu starfi, en vió þurfum bæói trausta samstarfsaðila, trúfasta stuón- ingsaðila, góðan hóp sjálfboóaliða og réttsýna stjórn sem leitar vilja Guðs. Ef hann hefði ekki verið á bak við þetta starf þá hefði það aldrei vaxið svona og við hefðum aldrei haft úthald til aó fylgja þessu eftir. Við höfum oft tekió skref í trú sem við höfum ekki séð fyrir hvernig gengju upp. Eins og þegar „ísland" var keypt, það er landið fýrir Heimili litlu Ijósanna, sem aó við þurftum að kaupa til að geta byggt skóla þar. Á sama tíma vorum við aó byggja stærsta húsið á Heimili litlu Ijósanna þannig að þetta var mjög stórt trúarskref því við höfðum aldrei glímt við svona háar upphæðir áður. Þegar ég leitaði Guðs meó þetta 18

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.