Bjarmi - 01.11.2001, Side 27
Eftirlætis ritningarstaðurinn
Barnið mitt,
syndir þínar eru fyrirgefnar
Eg hefverió upptekinn af ábyrgó minni sem foreldri und-
anfarið. Þaó er ekki lítil ábyrgó sem vió foreldrarnir ber-
um á börnum okkar. Öll viljum vió að þeim farnist vel og elsk-
um þau meira en allt annað. Við viljum forða þeim frá öllum
hættum og gefa þeim besta veganesti sem hugsast get-
ur út í lífió.
Ef til vill finnst þér einkennilegt aó ég vilji í þessu sam-
hengi nefna uppáhalds ritningastaðinn minn, orójesú í
Mark. 2,5: „Barnið mitt, syndir þínar eru fýrirgefnar."
Vió þekkjum samhengið sem þessi oró eru sögó í. Jesús
var staddur í Kapernaum og mannfjöldinn safnaóist í
kringum hann og fyllti húsið þar sem hann var staddur.
Margir stóóu fyrir utan þegar fjórir menn koma með
lamaóan mann og bregóa á þaó ráð að rjúfa gat á þak-
ið til aó komast að Jesú meó manninn og þá læturjesús
þessi oró falla.
Það besta sem vió getum gert fyrir börnin okkar er aó
fara meó þau til Jesú, það gerðu foreldrar mínir meó
mig og það var besta veganesti sem ég gat fengió. Ég
veit reyndar aó þau bera mig enn fram fyrirjesú í bæn-
um sínum, þaó eru nefnilega forréttindin við aó eiga
foreldra, ég er alltaf barn þeirra, óháó því hversu gam-
all ég er.
Við foreldrarnir erum eins og mennirnir fjórir í frásög-
unni sem tóku á sig ábyrgðina og gáfust ekki upp fyrr en vin-
ur þeirra var kominn fýrir fæturjesú. Hvaóa „þak“ þurfum vió
að rjúfa til uppfylla ábyrgó okkar? Skyldi þaó vera tímaleys-
ió? Tíðarandinn sem ýtir ábyrgóinni alltaf yfir á aóra? Efnis-
hyggjan sem segir meira, meira? Skyldi þaó vera ofuráhersl-
an á skyndilausnir og skjótan árangur?
„Barnió mitt, syndir þínar eru fyrirgefnar." Þaó sem skiptir
máli við þessi oró er hver segir þau. Það er sá hinn sami sem
sagói: „Allt vald er mér gefió á himni og á jörðu,“ og: „Það er
fullkomnað," og sem röddin af himni sagði um: „Þessi er
minn elskaói sonur sem ég hef velþóknun á.“ Þessi orð,
„Barnið mitt, syndir þínar eru fýrirgefnar", eru ekki sögð sem
auglýsingabrella til að auka fylgi eóa til aó selja skyndilausn.
Þau eru sögó af fullri alvöru og ábyrgð til aó gera okkur
mögulegt aó standa upp og ganga áfram veginn, uppreist og
glöó af því aó okkur er fyrirgefló.
Þaó getur kostaó baráttu aó rjúfa „þakió", það kostartíma
að vera með börnum sínum og því þarf aó skipuleggja tímann
og tíminn fær innihald þegar honum er varió meójesú, í kirkj-
unni, á samkomu og líka á heimilinu. Hjájesú njótum vió öll
þeirra forréttinda aó vera börnin hans, sem fá kraft og vilja til
að fyrirgefa hvert öóru, elska hvert annaó, bera ábyrgð hvert
á ööru og ganga upprétt saman, því hann veit hvers vió þörfn-
umst.
Bjarni Císlason er kennari.