Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.11.2001, Síða 29

Bjarmi - 01.11.2001, Síða 29
Heiórún, Ólöf Inger, Agla Marta og Helga Vilborg. Myndin er tekin á útgáfutónleikunum í Breióholtskirkju um diska með tónlist frá Eþíópíu og Kenýu. Hann sýndi okkur síðan hug- myndir að töktum. — Hann var ótrúlega flinkur við að ná góóum stemmningum og eins mismunin- um á lögunum frá Kenýu og Eþíópíu. Þetta eru nefnilega svo ólík lög. — Hann notaði ótrúlega mikið af hljóð- færum og sum þeirra voru samsett þannig að hann þurfti að búa til ný nöfn á þau. Honum tókst að láta útsetning- arnar vera mjög fjölbreyttar þannig að hvert lag hefur sín sérkenni. Hvað tók langan tíma aö gera geisladiskinn? — Þetta tók ótrúlega stuttan tíma fyrir okkur. Ætli það hafi ekki verið u.þ.b. þrjár vikur. En mikió afvinnunni lenti á öðrum en okkur þannig að heildartíminn er miklu lengri en nokkrar vikur. Það var svo ótrúlegt að við komum eiginlega ein- göngu til að syngja þannig að vinnan var ekki svo mikil hjá okkur. Okkar vinna var í raun að mestu búinn þegar kom að því að gera geisladiskinn. — Það var áberandi þegar við vorum að taka upp að ef við báðum ekki áður var eins og við gengum á vegg. Það vantaði eitthvað og síðan báðum við saman og þá kom það. Við höfum líka haft það fýr- ir venju að biðja alltaf áóur en við syngj- um einhvers staðar. — Þetta er allt gert fýrir Guð og þaó er hann sem hefur gefið okkur þetta allt. Þetta kom einhvern veginn allt upp í hendurnar á okkur. Þess vegna heitir diskurinn „Asante" en það þýðir þakkir. Diskarinn skiptist i afríkulög annars vegar og íslensk sálmalög hins vegar. Afhverju kjósið þið að blanda þessu tvennu saman? — Þegar vió syngjum afríkulögin þá erum við að syngja á máli sem fólk skilur ekki. Þess vegna er gott að hafa sálmana með því að það er svo mikill boðskapur og prédikun í þeim. Þið hélduð síðan útgáfutónleika í Breiðholts- kirkju. Hvernig voru þeir? — Þeir voru mjög skemmtilegir. Við flutt- um allt á staðnum, það var ekki leikið efni af upptöku, það voru því mjög marg- ir sem spiluðu meó okkur, margir slag- verksleikarar, strengjakvartett og margir fleiri. Það var full kirkja og góð stemmn- ing. Hvernig hafa viðtökur verið? Hefur diskurinn selst ágcetlega? — Við erum búnar að selja fýrir kostnaði svo nú fer hann að skila tekjum fýrir kristniboðið. Þannigað markmiðið er aó nást. Við eigum eftir að syngja mikió á næstunni og vonandi veróur það til aó hann seljist meira. Diskurinn er reyndar mjög víða í sölu svo að erfitt er að segja nákvæmlega til um stöðuna. Hann hefur samt verið aó seljast jafnt og þétt. — Við höfum fengið fýrirspurnir víða að, það hringdi t.d. maður í okkur frá Sel- fossi og baó um diska. En diskurinn erfá- anlegur í Reykjavík og á Akureyri. — Við fengum smá umfjöllun um tónleik- ana í Morgunblaðinu. Síðan komum vió fram í „Kastljósi“ og „íslandi í bítió“. Auk þess fórum við í tvö viðtöl á Rás 2. — Við höfum líka myndað tengsl víða með tónlistinni. Vió höfum oft fengið hlý viðbrögð frá afrísku fólki sem er búsett hér á landi. Þannig að tónlistin hefur tengt okkur við það. Síóan er líka verið að spila diskinn okkar úti í Afríku, t.d. í Addis Abeba. Þá keypti útvarpskona frá Bandaríkjunum diskinn og einnig hefur eitthvað farið af honum til Noregs. Þannig að hann hefur farið mjög víða. Hvað œtlið þið að gera núna? Á að fara beint í að gera aðra plötu? — Ekki alveg strax! En við erum þó byrj- aðar að æfa ný lög. Frá og með septem- ber erum við aftur mikió bókaðar og við erum nú þegar búnar að fá beiðni fýrir föstudaginn langa á næsta ári! Það verð- ur líka nóg að gera við aó kynna plötuna áfram. 29

x

Bjarmi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.