Heima er bezt - 01.04.1951, Síða 11

Heima er bezt - 01.04.1951, Síða 11
Nr. 2 Heima er bezt 43 ELIAS MAR: Reykjavíkurþáttur Elías Mar ÞAÐ ER AF, sem áður var, er Islend- ingar voru svo dansklundaðir, að jafnvel fyrirmyndirnar að bínefnunum þurftu þeir að sækja til drottinþjóðarinnar við Eyrarsund. Þegar ég fyrir skemmstu spíg- sporaði um Lækjargotu, hína fyrstu heimsborgartröð í Reykjavík, kom mér það einmitt til hugar, sem ég hafði lesið einhversstaðar endur fyrir löngu, að fyrir um það bil heilli öld var gatan bínefnd — eftir danskri fyrirmynd — og kölluð Ifeilagsandastræti. Tilefni þeirrar nal'n- gil'tar vai: það, að á þeim árum stóðu að- eins tvö hús við götuna, hús sjálfs bisk- upsins, Helga Thordarsens, og hús dóm- kirkjuprestsins, séra Asmundar Jónsson- ar. Þetta var á þeim tírna, þegar siðmenn- ing höfuðborgarinnar var enn á því stigi, að algengt var að uppnefna fólk og reynd- ar hvað sem var, draga dár að sérvitrum gamalmennum og vera viðstaddur kirkju- brúðkaup með samskonar hugarfari og maður horfir á bíó. En nú er öldin önn- ur, — jafnvel þótt sagan endurtaki sig stundum á nokkuð skemmtilegan hátt. Það vill ncfnilega svo til, að í dag búa við Lækjargötu bæði dómkirkjuprestur og biskup. En engum finnst ástæða til að veita því sérstaka athygli lengur. Borgin hefur nefnilega vaxið. Þorpið, sem einu sinni hxddist að litlu götunni 'meðfram læknum, nefndi hana „stræti" og kenndi hana við heilagan anda, þetta litla þorp hefur vaxið upp í það að verða borg, cignazt sín stræti og garða, og meðal ann- ars lagt breiðasta veg landsins að dyrum þeirra, sem boða okkur að feta hinn þrönga veg. Svona breytist allt. En úr því að ég er farinn að minnast á „stræti“, get ég varla varizt brosi, er ég mimiist fyrstu „strætanna" í höfuðborg okkar. Þau báru nefnilega ekki ýkjamikinn „str;cta“-svip; miklu fremur voru þau vottur um stefnuleysi og vöntun á smekk. Enda er orðið komið úr erlendum mál- um upprúnalega, einungis fyrir hégóma- skap einhverra hálfdanskra eða aldanskra „borgara" í gomlu Reykjavík. Að vísu sést þetta orð í íslenzkum skáldskap á 17. öld: „Háa steinstrætið heimsins sleipt“ kemur fyrir í Passíusálmum Hall- gríms Péturssonar, — og má vera, að hann hafi innleitt orðið í málið. En það er fyrir utan þetta umræðuefni. Sú eina gata í Reykjavík, sent lengi vel bar stræt- isheiti, var Aðalstræti, enda ber nafnið sjálft með sér orsök þess. Um þær mund- ir, sem gatan meðfram sjónum tók að byggjast, var hún aldrei nefnd annað en Strandgata, og hélzt það nafn fram til aldamótanna síðustu, enda þótt síðan hafi hún verið nefnd Hafnarstræti. Sama máli gegnir um troðninginn, sem mynd- aðist fyrir sunnan Strandgötu og nú heit- ir Austurstræti. Það var framan af aldrei kallað annað en I.anga stétt. Þessi nöfn eru nú öllum gleymd, nema örfáum gam- almennum, sem minnast þess nteð brosi, þegar bæjárstjórn Reykjavíkur lét leggja forarræsi eftir endilöngu Austurstrætinu og öllum þótti kostnaðurinn og bruðlið við slíka framkvæmd svo óheyrilegt, að minna mátti ekki gagn gera en kalla það „Gullrennuna". En um þær mundir er strætisheitið farið að ryðja sér til rúms. Þegar fyrsti bankinn á Islandi var opn- aður í nýju steinhúsi við Bakarabrekk- una, þar sem nú er til húsa Bókaverzlun Sig. Kristjánssonar, þótti ekki hlýða, að brekkan drægi nafn sitt lengur af Bern- höftsbakaríinu gamla, heldur varð að skíra hana Bankastræti. Sama máli gegndi um Kirkjubrú, götutroðning, sem lá milli dómkirkjunnar og gamla grafreitsins. Hann var gerður að KirkjusírÆíi. Síðan komu til skjalanna nýjar götur fyrir aust- an Lækinn, uppi í holtinu þar: Ingólfs- stræti, ÞingholtssírÆfi; enda þótt enn tnegi telja á fingrum annarrar handar þau ár, sem liðin eru, síðan slóðir þessar voru malbikaðar og steinlagðar, sem ætla mætti þó, að væri frumskilyrði þess, að þær nefndust stræti. Annars er lítið um það í söguheimildum um Reykjavík, að götur hafi skipt um nafn. Nýjasta dæmi þess mun vera það, er Hringbraut, frá Skúlagötu og að Landsspítalanum, var umskírð og eiginlega skipt niður í tvær götur, Snorrabraut og Þorfinnsgötu. Úr heimildum frá fyrri tíð man ég ekki í svipinn eftir fleiri en tveimur nafna- breytingum. Sú fyrri er Suðurgata. Hún hét áður Kirkjugarðsstígur eða bara Lík- hússtígur. Það var á þeim árum, þegar hún var lítið annað en tengiliður þorps- búa við „helgra guðs barna legstaði"; og þótti reimt þar í myrkri. Síðari nafn- breytingin, sem rifjast upp fyrir mér, er Vesturgötunafnið. Sú gata hét lengi vel Hlíðarhúsastígur, eftir torf- bæjasamstæðu einni, er nefndist Hlíðar- hús og stóð þar sem nú er Ægisgata neð- anverð. Vesturgata var einnig kölluð La'knisgata, sökurn þess, að í túninu suð- vestur af götunni lét Jón Thorsteinsson landlæknir reisa sér hús. Það hús stendur enn, Doktorshús, og heyrir til Ránargötu, ef ég man rétt. Annars er ekki fráleitt að ljúka þessum Reykjavíkurþætti, sem að mestu hefur verið helgaður gatnanöfnum, með því sem Bened. Gröndal segir um þá hluti í Þórðar sögu Geirmundarsonar, þar sem Alamala og Þórður eru að virða fyrir sér Reykjavík nítjándu aldar. Þar cr þetta skráð: „Þórður gat þess til, að villti- gjarnt mundi vera þar sem væri svo margar götur, en Alamala kvað bæjar- stjórnina hafa ráðið bót á því, með því að setja nöfn á allar götur, enn þótt flest nöfnin væri óheppileg og ljót, „hérna er nú Kolasund," sagð’ ann, „og vita menn eigi hvort kallað muni vera svo af stein- kolum eða sandkolum; þarna er Póststofu- stræti, en ef póststofan verður einhvern- tíma annarsstaðar, þá verður þar ekkert Póststofustræti; svo er Veltusund, og skilja engir það nafn nema sprenglærðir sagnfræðingar; þá er Veíturgata, hún er svo löng, að hún nær heimsenda milli, en Framnes-stígur er alls ekki í bænum, og svo er um fleiri götur, að enginn botn- ar x þeim og enginn veit hvernig á þeim stendur, en þó mun bæjarstjórnin eitt- hvað hafa haft fyrir sér i þessu efni . . .“ Elias Mar. . SVEITIN OKKAR E F T I R ÞORBJÓRGU ÁRNADÓTTUR fjallar um íslenzkt sveitalíf á fyrsta tug þessarar aldar. — Prófeessor Richard Beck segir um þessa bók m. á.: „.... Undiralda þessarar bókar er djúpstæð átthagaást og ást á þeim sögulegu menningarlegu erfðum íslenzku þjóðarinnar, sem verið hefur henni orku- lind til dáða á liðinni tíð . ... “ k___________________________^

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.