Heima er bezt - 01.04.1951, Side 29

Heima er bezt - 01.04.1951, Side 29
Nr. 2 Heima er bezt 61 hann til þess að við gætum kom- izt til Hobartstown, því okkar eigin var hriplekur.“ „En þetta er ekki siglingaleið- in til Hobartstown," hélt hafn- sögumaðurinn áfram. „Nei, en við sáum ykkar skip, og hugðumst öruggari í ná- munda við ykkur, þegar storm- urinn skylli á.“ Þetta var, út af fyrir sig, ekki ótrúleg skýring. Og nú var taug kastað niður í bátinn og hann bundinn við skipið. Því næst komu bátverj- ar upp í skipið hver á eftir öðr- um .... Og — nú skipti engum togum! Það sló þegar í bardaga, sem að vísu stóð ekki lengi, því aðkomumenn voru allir vopn- aðir byssum. Hér var sem sé á ferð hinn al- ræmdi ræningjaflokkur Svarta Dicks. Þeir félagar höfðu ráðizt á strandgæzlumennina, myrt þá og klætt sig í föt þeirra. Og nú var næsta skrefið að ná valdi yfir Marry Ann. Við smá bendingu frá Svarta Dick, miðuðu ræningjarnir byss- um sínum, og foringinn til- kynnti skipshöfninni á Mary ^Ann, að hver sem sýndi mót- stöðu, yrði tafarlaust drepinn. Það voru líka aðeins fjórir, sem snerust til varnar: skip- stjórinn, káetuþjónninn og tveir af hásetunum. Sá fyrst nefndi hlaut þegar sár, drengurinn var tekinn höndum eftir snarpa viðureign hans við ofurefli, og hásetarnir tveir myrtir, og varpað útbyrðis. — Þar með var Mary Ann komin á vald ræningjanna. Eftir stutta ráðstefnu, sem Svarti Dick átti með mönnum sínum, var hafnsögumaðurinn og fjórir af hásetunum settir niður í bátinn, sem síðan var stjakað burtu frá skipinu. En skipstjórinn og þeir, sem eftir voru af skipshöfn hans, — alls sex menn —, fengu þau fyrir- mæli, að sigla Mary Ann til Kaliforníu. Jafnframt var til- kynnt, að hverskonar mótþrói og ótrúmennska við ræningjana, yrði launuð með lífláti ,en aftur á móti skyldi skipshöfnin upp- skera ríkuleg laun, ef hún skil- aði þeim farsællega til ákvörð- unarstaðar. Sömu nótt lét Mary Ann í haf, og við dagmál var ekki lengur landsýn. Sár skipstjórans, sem næstum hafði valdið honum dauða, hafð- ist illa við og Truesalt gamli var máttfarinn og miður sín. Svarti Dick vildi þó umfram allt halda í honum líftórunni, vegna þess hve þýðingarmikill hann var við að sigla skipinu. Hann hefði þó áreiðanlega löngu verið búinn að fleygja honum fyrir borð, ef hann hefði trúað öðrum til þess að stjórna skip- inu. Stýrimaðurinn, snaggaralegur náungi, en þó hæglátur og fum- laus, virtist láta sér vel líka húsbóndaskiptin. Hann vissi að ekki þýddi að múðra neitt úr því sem komið var, og því bezt að taka þessu eins og hverju öðru er að höndum ber á hafinu, með æðruleysi og ró. Með sjálfum sér hugsaði hann skálkunum þó þegjandi þörfina, ef hann fengi færi á að gera þeim grikk. Svarta Dick og stýrimannin- um samdi í öllu mjög vel, og ræningjaforinginn fékk traust á stýrimanni. Aftur á móti bar hann dauðlegt hatur í brjósti til káetuþjónsins, sem snúist hafði til varnar þá er þeir hlupu upp á skipið. Drengurinn var pískaður á- fram nótt og dag, látinn standa við stýrið, og gera öll hugsanleg verk um borð — oft þau hættu- aömustu. Meðan aðrir nutu fullrar hvíldar, mátti Karl — en svo hét hann — þakka fyrir ef hann fékk að sofa helminginn af hvíldartímanum. Eitt sinn var hann rifinn upp úr kojunni og honum skipað að fara á vakt, en þegar út kom lét Svarti Dick binda kaðal undir handleggi hans, og síðan var hann halað- ur upp í siglutopp og látinn hanga þar unz hann svimaði og varð örmagna af kulda og hræðslu. Um morguninn, þegar hann fékk að koma niður á þil- farið aftur, var hann orðinn stífur af kulda, og myndi ekki hafa getað gengið, ef stýrimað- urinn hefði ekki hjálpað honum. Fyrir þetta hlaut stýrimaður bullandi skammir hjá Svarta Dick, og hefði það verið ein- hver annar en stýrimaður, sem átti í hlut, myndi hann vafa- laust hafa týnt lífinu fyrir. Stýrimaður var skyldur drengnum og tók sárt til hans. Þó hvíslaði hann að drengnum um leið og hann studdi hann að kojunni: „Ef þú segir nokkrum lifandi manni frá frændsemi okkar, skipti ég mér aldrei af þér framar, hvað sem þeir kunna að gera við þig.“ Skipstjórinn var ekki aðeins illa haldinn út af sárinu, held- ur setti að honum hugarvíl og örvæntingu út af því, að hafa tapað skipinu i hendur ræningj- anna. En þrátt fyrir þjáningar hans og örvinglan var hann neyddur til þess að aðstoða stýrimann- inn við siglinguna. En Svarti Dick var nógu séður til þess, að láta skipstjóra og stýrimann aldrei vera tvo eina saman. Á hverri nóttu sátu ræningj- arnir að sumbli og svalli. Oft óskaði Truesalt gamli skipstjóri þess, að þeir kveiktu í skipinu í drykkjulátunum. Þá mundi þessu lokið! Annað veifið örlaði þó á von- arneista í brjósti hans um að hann kynni að öðlast frelsi á ný, og í því sambandi var það hefndin, sem honum kom fyrst í hug. En ræningjarnir voru varkár- ir og létu skipstjórann aldrei fá tækifæri til þess að vera einan með mönnum sínum. Truesalt sýndist næstum, sem stýrimað- urinn myndi vera orðinn á þeirra bandi, svo mikið og náið samband hafði hann orðið við ræningjana. Eitt sinn er hann hafði tæki- færi til þess að tala við stýri- manninn, stakk hann upp á því að þeir ættu að reyna að flýja skipið, eða að granda því að öðr- um kosti. Þá hristi stýrimaður- inn aðeins höfuðið og sagði: „Bíddu hægur. Það þýðir ekk- ert að æðrast. hlutirnir verða að hafa sinn gang.“ Allir nema timburmaðurinn, sem þekkti stýrimanninn frá bernsku, héldu, að hann væri svikari. Hann leit út fyrir að vera einn af þeim mönnum, sem standa alltaf með þeim, sem völdin hafa.

x

Heima er bezt

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.