Heima er bezt - 01.08.1951, Síða 28

Heima er bezt - 01.08.1951, Síða 28
188 Heima er bezt Nr. 6 TVÖ KVÆÐI Eftir síra Sigurð Norland, Hindisvík beitt var út í svokallaSar Borg- ir og var það um 3 km. leið beint áfram. Jörð mátti heita að mestu leyti auð, en frost höfðu gengið og stillt veður undanfarið, Þegar ég fór af stað, til þess að smala fénu, mun kl. hafa verið 1 eða eitthvað að halla í 2 e. h. Féð hafði dreift sér út um allar Borgir og tók það mig um 2y2 kl.tíma að koma því saman. Litlu síðar, þegar ég hafði kast- að tölu á féð og rekið það sem svaraði helming leiðar heim aftur, datt mér í hug að skilja það þar eftir og fara að leita að 6 kindum, sem vöntuðu daginn áður. — Um stund var ég á báðum átt- um, hvað gera skyldi, því skammt var orðið til myrkurs, en þá varð mér litið í norður- átt og sá ég þá, að mökk mikinn kembdi upp á norðurfjöllin. í fyrstu hélt ég að þetta væri kulda þoka, en brátt sá ég, að kafald mundi þar vera með að meira eða minna leyti. — Eftir svo sem tíu mínútur var líka komið afar mikið ofankafald, en logn svo ekki blaktaði hár á höfði. Á þessum fáu mínútum hafði féð dreift úr sér, svo ég sá ekki nálægt því út yfir það. Mér leist þá ekki á blikuna og sigaði hundinum á féð. En það stóð heima, að þegar hundurinn hafði keyrt féð í hnapp, þá var eins og hendi hefði verið veifað, því skollin var á norðan stórhríð með á að gizka 7—8 st. vindhraða. Ekkert sást nema aðeins ofan fyrir fæturna. Alla leið heim sá ég ekkert af fénu nema öft- ustu kindurnar. Hefði ég sent hundinn á féð einni mínútu seinna, hefði engin kind komizt í hús það kvöldið. Ég varð að sækja beint á móti veðrinu með féð og gekk því hægt að koma því áfram, en um síðir komst það þó allt heim að húsum, og fannst mér þá mikið unnið, en veðurofsinn og hríðarstrengur- inn var svo mikill á fjárhúsa- hlaðinu, að ég var á annan tíma að koma því inn. Ég man ekki eftir að ég hafi Vísur um landið ísland liggur alveg sér yzt við norðurstrikið, ei að síður á því ber undarlega mikið, lítil álfa metast má milli hafa tveggja, horfir bæði höfin á, hlýtur kosti beggja. Það er kennt við eld og ís, öfgar stórar bíður, þar sem ýmist elfan frýs eða lindin sýður. Út við strönd þar oft er svalt eins í kofa og höllum, en það verður engum kalt uppi á Hveravöllum. orðið öllu ánægðari yfir dags- verki en í þetta sinn. Og mér hefði fundizt ég ekki geta látið nokkurn mann sjá mig, ef ég hefði komið kindalaus heim. — Þann dag misstu sumir féð út úr höndum sér og urðu að koma allslausir heim. Aðrir fóru ekki til kinda fyrr en hríðin var skollin á og fundu því ekkert. — Um daginn, þegar ég var að smala fénu, hitnaði mér á göng- unni og fór ég því úr utanyfir- stakk og hélt á honum undir hendinni. En ekki gaf ég mér tíma til þess að fara í hann aft- ur, fyrr en hver kind var kom- in í hús. Þá tók ég fyrst eftir því, að ég var nærri farin að skjálfa af kulda, enda var ég aðeins á þunnri beysu yzt fata. Litlu síðar kom fóstri minn heim. Hann var staddur á Borðeyri, þegar hríðin skall á og gaf sér ekki tíma til þess að sinna út- tekt, heldur fór hann þegar af stað aftur heimleiðiðs, laus og liðugur, ásamt samfylgdar- Yfir sér það lítið lét láns þó nýtur sona, sem með þjóðum setja met, svo að margir vona: Annað met við munum hér margir setja í einu, þegar framar enginn er orðinn frjáls að neinu. Heim úr kaupstað Á milli allra eyja var ís á Breiðafirði og ekki einskis virði, því oft var hleypt á skeið. Þeir sögðu, að aldrei yrði um ísinn betri leið. Þá kom úr kaupstað bóndi og kaus sér leið um ísa, manni, Skúla Jóhannessyni, bónda á Dönustöðum. Hann hélt að allt væri í voða heima, ég hefði farið of seint til kindanna og engri skepnu kom- ið í hús og gott ef ég hefði haft mig heim sjálfur. Hann varð því heldur glaður við þær frétt- ir sem hann fékk, þegar hann kom heim, að allt féð hefði komizt í hús. Enda geta allir þeir, sem í sveit hafa verið, rennt grun í það og eru meira og minna háðir veðráttunni, eiga oftast afkomu og aleigu sína undir henni. — Að endingu skal það tekið fram, að sá sem þetta ritar, hefur ekki skráð þennan atburð af þeirri ástæðu, að hann sé að miklast af því að hafa bjargað fénu, því þar er ekki af neinu að miklast, heldur til þess að sýna, hvað litlu munaði stund- um að illa færi á fjallabæjum, hér fyrri, ef menn voru ekki alltaf vakandi yfir skepnum og veðri. Jóh. Ásgeirsson.

x

Heima er bezt

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.