Heima er bezt - 01.08.1951, Qupperneq 32
192
Heim'a er beet
Nr. 6
Föndur fyrir unglinga:
að utan með á tvo vegu, verð-
urðu að nota sporjárn.
Hvernig á að geirnegla?
7) Berðu þjöl og sandpappír
á viðinn, þangað til tennur falla
vel í grópirnar, án þess þó, að
þær séu of víðar.
HÓKUS-PÓKUS — segir töfra-
maðurinn og blekkir um leið á-
horfendur sína með furðuleg-
ustu hlutum. Jafnvel þótt mað-
ur viti, hvernig á að fara að því
að fremja slíka galdra, er öld-
ungis óvíst, að maður geti það
sjálfur. Sumpart hefur töfra-
maðurinn allskonar tæki sér til
hjálpar, og svo hefur hann æf-
ingu í snjöllum og hröðum
handbrögðum.
Nú skal ég gera þig að töfra-
manni! Líttu á myndina hér,
sem merkt er orðinu „Model“. Sá
hlutur er eins frá þeim hliðum,
sem ekki sjást á myndinni, og ég
skal segja þér hvernig þú átt að
fara að því að búa hann til.
Tréklumparnir eru geirnegld-
ir. Það kallast að geirnegla,
þegar viður er felldur saman
eða greyptur á þennan hátt Og
nú skaltu útvega þér klossa, sem
þú sagar og heflar, unz hann
lítur út eins og mynd 1.
1) Notaðu vinkil og rissmát til
þess að hliðarnar verði alveg
jafnar og hornréttar. Farðu með
fínum hefli yfir endafletina.
2) Síðan merkirðu allt í kring
á klossanum með hjálp vinkils-
ins, eins og sýnt er á mynd 2.
Ef strikin mætast, hefur þér
heppnazt fullkomlega með
klossann.
3) Þegar þú gerir þessi strik,
þá minnztu þess, að klossarnir
eiga að verða tveir, A og B, og
að skástrikin, sem sett eru að
endilöngu, móta fyrir grópum
og tönnum, sem eiga að falla vel
saman. Nú sagarðu klumpinn i
tvennt og gerir hina nýju enda
fína viðkomu með hefli og sand-
pappír.
4) Nú dregurðu línurnar yfir
endana með rissmátinu.
5) Sagaðu grópirnar með þar
til gerðri sög, sbr. myndina.
Gættu þess, að betra er að saga
of lítið en of mikið, Ef tenn-
urnar eru of stórar, geturðu
hæglega sorfið utan af þeim
með þjöl eða sporjárni.
6) Til þess að ná burtu smá-
klossunum, sem þú hefur sag-
8) Nú eiga klossarnir að
skipta um útlit. Á myndinni
sérðu, að það á að sjást tönn á
hverri hlið þeirra, en þetta
fæst með því að taka utan af
köntunum. Á mynd 8 sérðu,
hversu mikið þú átt að taka.
Sá hlutinn, sem strikaður er í
endann, á að verða eftir. En
farðu varlega með sögina og
hefilinn, þegar þú gerir þetta,
því annars getur verið að hrökvi
í sundur einhver tönnin, sem þú
hefur haft svo mikið fyrir að
búa til.
Nú ætti þér að vera ljóst, með
góðri athugun á myndunum, i
hverju galdurinn er fólginn.
Klossarnir eru settir saman frá
hlið. Auðveldara er að sjá, að
þeir eru tveir, ef annar þeirra
er dökkmálaður eða báöir hafðir
málaðir sinn í hvorum lit.
Modell
Tapp