Heima er bezt - 01.09.1956, Blaðsíða 19
rauðu loga eldfjallanna. — Ég heilsa
hinum íslenzka fána og færi lýðveld-
inu íslenzka hinar hlýjustu óskir
norsku þjóðarinnar og óska því allr-
ar gæfu á komándi árum.“
Ur ummælum blaðanna skal þetta
hermt:
„Ásgeir Ásgeirsson forseti kemur
ekki hingað sem fulltrúi söguþjóðar.
Hann kemur í vináttuheimsókn frá
þjóð, sem er í örum framförum og
vexti. Hin herfræðilega lega landsins
og einhæfir atvinnuvegir þess hafa
skapað því mörg óvenjuleg viðfangs-
efni.
Vér óskum eftir að efla tengslin
við ísland, á líkan hátt og gert hefur
verið á menningarsviðinu á undan-
förnum árum. Heimsókn Ásgeirs Ás-
geirssonar og ferðalag hans hér í
landinu mun færa báðar þjóðirnar
nær marki þessara óska.
í mannsaldur hefur hann tekið
virkan þátt í norrænu samstarfi með
ýmsum hætti. Það samstarf var und-
irstrikað með ályktun Alþingis við
lýðveldisstofnunina 17. júní 1944.
Þegar hann stígur á land á mið-
vikudaginn ásamt forsetafrú Dóru
Þórhallsdóttur, verður gamall norsk-
íslenzkur óskadraumur að veruleika.“
(Morgenbladet).
„Norska þjóðin býður Ásgeir Ás-
geirsson og Dóru Þórharllsdóttur vel-
komin í dag til lands síns. Dagana,
sem þau dveljast í Noregi, munu
hinar hlýju tilfinningar, sem allir
Norðmenn bera til landsins í vestri,
streyma móti þeim. Vér bjóðum þau
velkomin sem fremstu fulltrúa þjóð-
ar, sem vér höfum rakið ættir til um
þúsund ár.
Um aldir fjarlægðust Norðmenn
og íslendingar hvorir aðra, en vin-
áttuböndin eru knýtt á ný, og fram-
undan oss er samstarf, ef til vill miklu
mikilvægara en nokkru sinni fyrr.“
(Dagbladet).
„Það hrærði hjörtu Norðmanna,
þegar forsetinn í ræðu sinni sagði, að
Að ofan: Frá hevmsókn forsetahjónanna
að Holti í Önundarfirði.
í miðju: Forsetahjónin koma til Rafns-
eyrar í Arnarfirði.
Að neðan: Heimsókn forsetahjónanna til
Seyðisfjarðar.