Heima er bezt - 01.07.1966, Síða 3
/
NÚMER 7
JÚLÍ 1966
16. ARGANGUR
ÞJÓÐLEGT HEIMILISRIT
Efnisyfirlit
Bls.
Oddný A. Methúsalemsd., Ytri-Hlíð, Vopnafirði Björn JÓhannsson 224
Nonni fer á bjarg Þórður Jónsson 229
Grímur sauðamaður (niðurlag) Magnús Gunnlaugsson 233
Þættir úr jarðsögu (fjórða og fimmta grein) Steindór Steindórsson 23ó
Hláka (Ijóð) Jón Á Bergi 242
Glíman um „Grettisbeltiðu sextíu ára Benjamín Sigvaldason 243
Hvað ungur nemur — 247
Kirkjubær á Síðu —
Kirkjubæjarklaustur Stefán Jónsson 247
Dægurlagaþátturinn Stefán Jónsson 251
Hanna María og villingarnir (7. hluti) Magnea frá Kleifum 253
Bókahillan Steindór Steindórsson 259
Börnin í Nýjaskógi (myndasaga) Marryat kapteinn 260
Hrunadans bls. 222. — Leiðrétting bls. 228. — Bréfaskipti bls. 242. — Robbi og undravélin
(myndasaga) bls. 252. — Ný framhaldssaga bls. 258.
Forsiðumynd: Oddný A. Methúsalemsdóttir, Ytri-Hlið.
HEIMA ER BEZT . Stofnað árið 1951 . Kemur út mánaðarlega . Áskriftargjald kr. 250.00 . Gjalddagi 1. apríl . í Ameríku $6.00
Verð í lausasölu kr. 25.00 heftið . Útgefandi Bókaforlag Odds Bjömssonar . Heimilisfang blaðsins: Pósthólf 558, sími 12500, Akureyri
Ábyrgðarmaður: Sigurður O. Bjömsson . Ritstjóri: Steindór Steindórsson frá Hlöðum . Prentverk Odds Bjömssonar h.f., Akureyri
Geta verður þess einnig, að margt er það, sem nauð-
synlega verður að framkvæma. Vér höfum hlotið að
gera stærra stökk fram á við í verklegum efnum á fá-
einum árum, en nær nokkur þjóð önnur. En ekki eiga
þær framkvæmdir nema sáralítinn þátt í verðbólgunni.
Framhjá því verður ekki gengið, að taumlítil eyðsla
þjóðarinnar á ríkan þátt í, hvernig komið er. Það er og
Ijóst að verðbólguhjólið verður ekki stöðvað, nema með
sameinuðu átaki allra. Það átak hlýtur að hafa í för með
sér nokkrar fórnir og óþægindi. Menn verða að leggja
á sig nokkurn sparnað og hófsemi, og hætta hrunadans-
inum kringum gullkálfinn. Hér duga ekki aðgerðir
nokkurra einstaklinga, heldur þarf samstillt átak þjóð-
arinnar allrar án tillits til stjórnmálaskoðana eða stétta.
Ef menn létu sér skiljast það og færu eftir því, mundi
þjóðlíf vort fljótt breyta um svip. St. Std.
Heima er bezt 223