Heima er bezt - 01.07.1966, Qupperneq 36

Heima er bezt - 01.07.1966, Qupperneq 36
hans, og er báturinn var kominn framhjá skerinu, mátti segja að meiri hluti stráksins væri utanborðs. — Hjálpaðu \’iktor, sagði afi við Hönnu Maríu. Neró stökk líka til hjálpar og beit í buxnastreng stráksins. Hanna togaði í af öllum kröftum, en það kom fyrir ekki, strákurinn var of þungur. Þá datt Iíönnu snjallræði í hug, hún greip snæris- hönk, bjó til lykkju í skyndi og brá henni utanum annan fót stríðshetjunnar, neðan við hné, og herti svo að lykkjunni. Nú gat hún spyrnt í bátinn og tekið í af öllum kröftum. Annars var hún alveg að springa af hlátri, svo að ekki var von að vel gengi björgunarstarfið. Nú gekk þetta samt, fóturinn lyftist smám saman, þótt hægt gengi. Neró náði loks góðu taki í buxna- skálin stráksins, og eftir það gekk þeim vel. Brátt gat Yiktor velt sér inn yfir borðstokkinn sjálfur. — \relkominn heim eftir frækilegan sigur yfir óvinunum, sagði afi glettnislega. V'iktor gretti sig. — Því skildirðu mig eftir? spurði hann. — Ég skildi þig ekki eftir, ég bað þig ekki að þjóta upp í skerið það arna. Ég hélt að þú ætlaðir kannski að setjast þar að. Viktor horfði á afa ofurlitla stund, svo rak hann upp skellihlátur. — Þú ert alveg stórsniðugur, gamli minn, ég meina að þú skilur allt svo vcl, sagði hann, ég vildi að þú værir afi minn. — I lugsaðu þér bara, að ég sé það þennan tíma scm þú verður hér, og kallaðu mig afa, sagði afi hlý- lega. — Mcinarðu þetra? spurði \'iktor undrandi. — Auðvitað, drcngur minn, ég kann hcldur ckki vcl við þetta „gamla“ tal í þér, þó ég sé auðvitað gamall; ég vil bara vera afi. Ég skal scgja þér, að jafnvel karlar eldri en ég er kalla mig afa í Kori, þcgar þeir tala um mig. Viktor stóð nú upp hátíðlcgur á svip og rétti afa höndina. — Ssell, afi, sagði hann. — SælJ, drcngur minn, sagði afi og tók þéttings- fast í hönd drcngsins og horfði fast í augu hans. \Tiktor nnðnaði ofurlítið og varð vandræðalcgur. Svo sagði hann: — I Icyrðu, þú þarna afi, cg skal strax hlusta á það, scm þú ætlaðir að tala við mig í morgun. — Það tölum við um í góðu tómi tveir einir, sagði afi. Hanna varð forvitin. Hvað skyldi afi ætla að tala um við strákinn, sem enginn mætti heyra. — Ætlarðu að skamma hann? hvíslaði hún. — Heyrðu, telpa mín, það er margt sem tveir karl- mcnn þurfa að tala um, en smátelpum kemur ekki neitt við, sagði afi og gaf henni selbita á nefið. Brátt voru þau komin í land, og þegar amma sá svona glænýtt lúðustykki á eldhússborðinu hjá sér, gleymdi hún alveg því, sem hún hafði ætlað að segja við þau uin góðan þurrk og letingja, sem léku sér úti á sjó í stað þess að rifja heyið. I lanna var send mcð stóran bita upp í heimabæ og átti að koma aftur með Viktoríu. Þau systkinin áttu nú að fá hrífu og rifja hey í fyrsta sinni á æv- inni. XI. Mósi leikur á Viktor Næstu daga var sífelldur þurrkur, og brátt kom að því að farið yrði að hirða heim heyið. Afi bað Hönnu Maríu að ná í Mósa gamla, en Viktor var enn á þeirri skoðun, að hann væri fær- ari um flesta hluti en stelpan sú arna, sein var líka nærri tveim árum yngri en hann, og bauðst hann því þegar til að sækja klárinn. Afi strauk skeggið og var á báðum áttum. Hann var ckki alveg viss um, að Viktor kæmi klárnum heim, en aftur á móri mundi drcngurinn inóðgast stórlcga, ef hann vantreysti honum. — Jæja, farðu þá, drcngur minn, cn vertu nú snar í snúningum. \'iktor tók bcizli á skemmuþilinu og var stórstíg- ur upp túnið. ÓIi átti líka að sækja Brynju fyrir föð- ur sinn, og nú mættust þeir við hliðið. — Sæli nú, sagði Óli hressilega. — Varst þú scnd- ur cftir klárnum? — Já, við ætlum að fara að hirða á eftir, svaraði Viktor. — Þú nærð aldrci klárnum. Þau eru að spila mcð þig núna. Viktor horfði cfablandinn á Óla, ætlaðist hann kannski til, að hann sncri við hcim afrur án þcss að ná klárnum, cða var hann að scgja satt, að afi væri 256 llrima er brzt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.