Heima er bezt - 01.07.1966, Page 38
það gat komið sér vel að eiga Viktor að vini, og svo
sagði hann:
— Allt í lagi, ég skal teyma undir þér.
Óli stökk af baki, tók taumana af Viktor og gerði
einteyming á iMósa. Svo brá hann sér aftur á bak
Brynju með Mósa í taumi.
Fyrst gekk allt vel, Mósi rölti fram með hliðinni
á Brynju ósköp sakleysislegur á svip, en ekki hefði
þeim dulizt sem hann þekktu vel, að nú var hann að
hugsa. Hann blakaði eyrunum fram og aftur hægt
og rólega, og augun voru hálflukt.
Óli ætlaði einmitt að fara að segja Viktor frá,
hvemig Mósi hefði leikið á Áka um vorið, en þá jós
Mósi ofurlítið.
— Hvað er hann að gera? spurði Viktor smeyk-
ur, greip í faxið á Alósa og leit aftur fyrir sig.
— Þetta er nú kallað að ausa, sagði Óli. Það hlaut
að vera, að honum dytti eitthvað í hug, reyndu bara
að halda þér fast.
Viktor hélt sér dauðahaldi, ákveðinn í að hanga
á baki, hvernig sem klárinn léti. Mósi jós og jós, en
Óli hélt honum svo fast upp að Brynju, að ekki var
þægilegt fyrir hann að ausa almennilega. Og loks
gafst hann upp.
— Það þarf að lcmja hann duglega, svo hann hætti
þessum látum, sagði Viktor, en ÓIi leit á hann hissa.
(Framhald)
Dægurlagaþátturinn
Framh. af bls. 252. ——————
son, sem hafði fagra söngrödd. Jón Pálsson frá Hlíð
þýddi Ijóðið fyrir Sigurð Þórðarson, söngstjóra.
STJENKA RASIN.
Norður brciða Volgu vegu
veglcgt fcr mcð þungum skrið
skipaval mót stríðum straumi:
Stjcnka Rasins hetjulið.
Frcmstur stendur frægur Rasin,
faðminn opnar blíðri snót.
Kxrlcikshátíð hcldur Rasin,
hlýnar sál við ástarhót.
Lxðist kurr um kappaskarann:
„Kcmpan svcik vort brxðralag.
Eina stund mcð ungmcv var hann
ástarbljúgur sama dag.
Aldrei beizkan hug né hatur
hver til annars bárum vér.
Aíóðir Volga, — bjarta brúður,
bezta hnoss mitt gef ég þér.
Volga, Volga mikla móða,
móðir Rússlands ertu trú.
Aldrei djarfir Don-Kósakkar
dýrri gjöf þér færðu’ en nú.
Hví er þögn, — þér hljóðir standið.
Hefjið dans og gleðimál.
Hefjum foma frægðarsöngva.
Friður sé með hennar sál.“
í þessum þætti í marzblaðinu 1966 er sagt, að Herdís
Pétursdóttir hafi gert lagið við ljóðið Reykjavík, cftir
Jenna Jónsson. Þetta er misprentun og á að vera Hjör-
dís Pétursdóttir.
Fleiri Ijóð birtast ekki í þetta sinn.
Stefán Jónsson, Skeiðarvogi 135.
r
Ný framhaldssaga í næsta blaði:
DALAPRINSINN
heitir ný skáldsaga
eftir hina vinsælu skáldkonu
Ingibjörgu Sigurðardóttur.
DALAPRINSINN
verður framhaldssaga í Heima er
bezt, og hefst í næsta blaði.
Fylgist með skáldsögunni
DALAPRINSINN
frá byrjun.
258 Heima er beit