Heima er bezt - 01.12.1968, Qupperneq 4
JÓN Á BERGI:
Nú koma jólin, því klukkurnar sld
og kalla mannanna fjöld,
að minnast fæðingu frelsarans,
er fœddist þett.a kvöld.
Og þó að úti sé niðadimm nótt
norður í köldum ver.
Þá munu jólaljósin Ijóma
og lýsa þér og mér.
Við krjúpum, finnum friðinn streyma
og fylla okkar sál.
Þeir sálmar er verða sungnir í nót.t.
eru sannarlegt. jólamál.
í brjóstinu þiðnar eitthvað óljóst
engin tjóar þar vörn,
því á jólunum allir eiga að vera
yndisleg jólabörn.
Og Guð hann var Ijúfur og góður maður,
sem gladdi börnin smá
með því að gefa þeim gleðileg jól,
sem glóðu á hvítum snjá.
Mamma og pabbi prýddu húsið
og pakka báru fram.
I þeim leyndust litir og spil
og líklega eitthvað „namm“.
Nú er orðið æðilangt síðan
enn eru haldin jól,
meðan dökkleit nóttin dregur í brýrnar
og döpur er heimsins sól.
Hátíðin viðkvæma hrærir strengi
og heilagt flytur mál.
St]örnurnar bera af blásvörtum himni
birtu í hverja sál.
Enn þá man ég mín æsku ]ól
mig óljós sækir þrá,
og enn þá finnst mér furðu stutt
er féllu tár um brá.
En þó var heimurinn harla góður
og hátíð í brjósti mér,
jólin Ijómuðu jafnan skærast
með sinn jólasveinaher.
Gamla fólkið gleðst í sinni
gamlar minningar við.
Sjúka dreymir dalinn sinn
dásemd hans og frið.
Allir blessa Maríu mey
þá móður er frelsarann ól,
því beygjum við kné og biðjum þau
um blessun og gleðileg jól.
^fWáWtWiWtWIWi#xff£fxf§#ixft«-f»-fxf|sffíf
408 Heima er bezt