Heima er bezt


Heima er bezt - 01.12.1968, Qupperneq 36

Heima er bezt - 01.12.1968, Qupperneq 36
Halldóra Bjartiadóttir og kennarar í Voss i Noregi 1901. mannsdóttur, og Þorbjörg, systir hans, gift Birni móður- bróður mínum á Veðramóti. Stefán varð þetta haust skólameistari, að Hjaltalín látnum, hlaut ég því, góðu heilli, hina ágætu íbúð þeirra hjóna. — Félagi minn þar þennan vetur var Elinborg frá Miklabæ, sem var stundakennari við Barnaskólann. Barnaskólahúsið var sæmilega gott hús, sterkviðað og hlýtt, 4 kennslustofur. — Ofnar og lampar í góðu lagi. Brunnurinn í brekkunni, fyrir ofan skólann, veitti ágætt neyzluvatn og til ræstinga. — Sú þjónusta var öll ár hin ágætasta. Jóhannes Halldórsson, guðfræðingur, hafði um tugi ára veitt börnum Akureyrar fræðslu með dugnaði, en ekki með neinum nýjungum og með litlum tilkostnaði. — En það voru einmitt nýjungarnar og aukinn kostnað- ur, sem fólkið þoldi ekki. — Enda lá við sprengingu í hinu friðsama bæjarfélagi, sem þá taldi tæp tvö þúsund. — Það var þá fyrst, að á þessu hausti voru öll 10 ára börn skólaskyld. — Það var strax nokkuð, en svo var margt nýstárlegt, sem forstöðukonan nýja kom með, sem átti þátt í umtali og umróti í hugum manna, enda var skólinn, að sagt var, umtalsefni í öllum kaffiboðum í bænum, æðri og lægri, margir voru með, margir á móti, eins og gengur, og blöðin létu ekki sitt eftir liggja. Það mátti segja, að skólinn var ekki látinn afsldptalaus á þeim árum í hinu fámenna bæjarfélagi. Það sem mestu umróti vakti voru skóskiptin. — Allir, háir og lágir, sem um skólann gengu, áttu að hafa utan- yfirskó, eða skipta um skó. — Þetta var óheyrt. Óþol- andi! — En hluturinn var, að gangstéttir voru þá engar til í bænum, menn óðu krapið og forina í skó- varp. — En skólinn var tví- og þrísetinn, svo loftið var lævi blandið. — Skólanefnd og kennarar samþykktu að halda út, hvað sem á gengi! — Þetta blessaðist á endan- um. — Enginn fékk kvef framar og aðrir skólar tóku þetta upp líka. Ég var heldur en ekki montin, þegar ég sá, að Sam- vinnuskólinn í Reykjavík hafði tekið upp skóskiptin! — Já, sagði Jónas Jónsson. „Náttúrlega tókum við ykkur Norðlinga á orðinu, og líkar vel!“ Og svo var það handavinnan, sem kennd var bæði piltum og stúlkum, en hafði aldrei verið kennd í skól- anum áður. — Furðulegt hvað fundið var upp á að eyða! „Þetta áttu heimiHn að annast,“ sögðu menn, en það 436 Heima er bezt

x

Heima er bezt

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heima er bezt
https://timarit.is/publication/380

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.